miðvikudagur, maí 30, 2007

lífið er lotterí



"Lífið er lotterí og ég fer brátt í frí" ég komst loksins að því í gær hvenær ég fer í sumarfrí en það er 11. júní og ansi stutt í það. En það verður ósköp gott að komast í frí eftir allan hamaganginn í vetur og vor:o).



Aðrar fréttir eru einnig þær að næsta vetur mun ég starfa á nýjum stað og kveðja mína ástkæru Skammtímavistun þar sem ég hef átt svo margar góðar stundir á svo marga vini sem mér eru kærir. En það er nú bara svona, lífið býður upp á svo margt sem vert er að reyna og prófa. Einnig verður það mikil breyting að vera meira heima á kvöldin og um helgar eins og hinir fjölskyldumeðlimirnir.


Hákon minn er nú fluttur á stúdentagarðana og leigir þar með vini sínum þett a fína slot og þeir eiga eflaust eftir að hafa það ljómandi gott þar herrarnir næsta vetur. Það er sem betur fer ekki ekki langt í burtu, bara þarnæsta gata:o). Hann er að vinna á leikskólanum Lundaseli og unir hag sínum vel þar með krökkunum auk þess sem að hann vinnur líka á Dóminos með Viljari á kvöldin og um helgar og af Viljari er það að frétta að auk þess að vera á Dómínos er hann líka að fara að vinna á bensínstöð svo það er nóg að gera í sumar hjá þeim bræðrum!


Karlinn er alltaf eins og útspýtt hundskinn um allar jarðir og nóg að gera hjá honum eins og venjulega;o) hann getur nú yfirleitt ekki setið kyrr nema kannski þegar við erum komin til útlanda, klesstur niður á sólbekk!


Júlía Birta gleðst yfir komandi sumri og fríi og ferðalögum og er hin hressasta.


Hér eru því allir í fínu formi þessa dagana sem betur fer;o)

Eitt heilræði í lokin: Take time to laugh for it is the music of the soul.





Mbk í bili Arna

föstudagur, maí 25, 2007

Lítið ráð;o)



Do what you can, for who you can, with what you have, and where you are.

Knús Arna

miðvikudagur, maí 16, 2007

HaHa


Varð að setja þessa mynd hér inn. Glasbergen kemur manni alltaf í gott skap.
Það yrði skrautlegt ef að þessi dagur kæmi einhverntíma, haha.
Kannast ekki allir við týndu sokka vandamálið?
Kveðja Arna

föstudagur, maí 11, 2007

Keppnin í gær!


Ég horfði með öðru auganu á júróvísion í gær og ég býst við að það hafi fleiri gert. Það er ekki undarlegt að keppnin sé oft kölluð fríksjóv. Þegar ég horfi á hana er ég stærstan hluta af tímanum með kjánahroll, þetta er oft svo hryllilegt eða bara sorglegt. Liðið oft rammfalsk og þetta líkist oft fyrstu þáttunum af idol (sem eru reyndar skemmtilegastir) þar sem maður fær að sjá verstu keppendurna. Margir virðast svo sannarlega lifa í mikilli sjálfsblekkingu og ofmeta hæfileika sína þar eins og reyndar þarna...........

Nú síðustu júróvisíonkeppnir virðist vinsælast að berja sem mest og fastast á trumbur, alveg síðan Ruslana gerði það, en mér fannst hún reyndar alveg hundleiðinleg, eða þá að vera með sem furðulegasta lúkkið og sjóvið. Mér finnst þetta vera þannig orðið að keppnin á minnst skylt við söngvakeppni, því eins og ég sagði áðan getur stór partur keppenda ekki sungið og þetta líkist oft frekar því að stigið sé á rófuna á ketti þegar þetta lið er að reyna að koma frá sér kannski bæði leiðinlegu og óskiljanlegu lagi. Eirikur og co stóðu sig ágætlega og fleiri sem ekki komust áfram því það virðist vera orðið þannig að þetta er bara einhver júróvísionpólitík og klíkuskapur milli landa. Ég var bara fúl fyrir Íslands hönd!

Það sem stóð upp úr eftir að hafa horft á þessa skelfingu voru kommentin frá Sigmari kynni, hann er alveg kostulegur og gaman hvernig hann kynnir keppnina. Allir að horfa á laugardaginn haha!!!

Jæja nóg bull frá mér í bili

Arna

fimmtudagur, maí 10, 2007

Skólinn búinn!


Jæja þá er skólinn búinn, síðasta verkefnið fór í póst rétt áðan! Ég trúi því varla!

Ég hélt að ég myndi verða eins og sprungin blaðra þegar ég væri búin að skila en stresshnúturinn situr sem fastast:O( Ætli hann verði ekki þarna þangað til einkunnir eru komnar.

Jæja en nóg um það ekkert hægt að gera við því svosem úr þessu.Það er bara að bíða og sjá hvað verður.


Annars er það að frétta héðan að allir eru bara hressir á bænum. Ég hef nóg að gera þó skólinn sé búin því nú tekur við að borga skuldir sínar í vinnunni. Það eru nokkrir sem eiga inni hjá mér tíma eftir að hafa reddað mér í sambandi við skólann!!!


Nú fer vonandi sumarið að koma, við fengum smá sýnishorn um daginn og það gaf manni drauma um notarlegar stundir í lauginni og pallinum:o) Svo styttist líka í spánarferð í sem er ekki slæmt og notarlega daga í steikjandi hita og sól. Maður fær þá allavega sól þar ef hún verður eitthvað sparsöm hér á landi blessunin. Svo er nýjasta búbótin hér á bænum tjaldvagn sem eflaust verður vígður á einhverjum góðum degi.

Það er semsagt ýmislegt spennandi í vændum á næstunni hér í Skessukoti.

jæja þetta er nóg í bili ég held að það væri ráð að gera eitthvað af viti og reyna t.d. að taka til í skápunum sínum en óneitanlega hefur ýmislegt setið á hakanum á þeim vígstöðvum að undanförnu vegna anna.

Ég kveð þá í bili með sól í hjarta;o) -og fer að taka úr þvottavélinni!!!!

Knús og kram til ykkar

Arna

þriðjudagur, maí 01, 2007

Maí


Jæja nú er maí kominn og bara stutt eftir af skólagöngunni í Kennó. Það eru blendnar tilfinningar sem bærast í brjóstinu þegar þessu er að ljúka. Gott að ná þessum áfanga en samt erfitt að hugsa til þess að nú fer hópurinn í sitthvora áttina. Sterk vináttubönd hafa orðið til og margt gott fólk hefur orðið á vegi manns á þessum tíma. Þessi tengsl vill maður halda í og ég vona að þau verði sterk í framtíðinni. Allt er breytingum háð og lífið er vegferð sem er síbreytileg. Ég er þakklát fyrir þessi ár og það sem þau hafa gefið mér. Því vil ég þakka þeim sem hafa fylgt mér á þessari leið og óska þeim alls hins besta:O)
Knús Arna