sunnudagur, október 22, 2006

Sætur sunnudagur


Jæja þá er kominn sunnudagur eina ferðina enn. Við hjúin erum búin að taka félagslífið með trompi, það er annað hvort í ökkla eða eyra í þeim efnum.
Húsbóndinn gekk í Líons með pompi og prakt á föstudaginn með tilheyrandi góðum mat og huggulegheitum, ofsa gaman & og svo skutluðumst við suður í hádeginu á laugardag til að fara á árshátið Húsasmiðjunnar sem var svo sannarlega fjörug að venju. Ég hló svo mikið að mér var orðið illt. Björgvin Frans var veislustjóri og fór gjörsamlega á kostum í því hlutverki. Hann tók fyrir nokkra söngvara og þar á meðal lék hann Geir Ólafs og þá hélt ég að ég myndi hlægja yfir mig, algjörlega frábært.Það voru líka nokkrir samstarfsfélagar Baldurs sem fóru á kostum!!!!hehemm nefni engin nöfn!Vorum svo komin heim um tvöleytið, Baldur stökk í málningargalla og beint út í bæ að mála!Aldrei til friðs þessi kall!
Viljar fór til Hákonar í helgarferð á fimmtud og þeir bræður höfðu það aldeilis gott þegar við hittum þá á laugardaginn;o)hann skilar sér svo heim í kvöld.
Júlía hafði ömmu hjá sér og þær höfðu það fínt hér heima með Nemó og Kúti!
Þetta er semsagt búin að vera hin fínasta & fjörugasta helgi hjá Skessugilsbúum!

þriðjudagur, október 10, 2006

Snjór!


Það er kalt og farið að snjóa, ég mátti vita það hælarnir alveg skrælnaðir!
Ég fæ ekki gikt þegar það verður kalt heldur þurrkast hælarnir upp og er ekki sjón að sjá þá, skelfilegir. Nú byrjar smurningin sem stendur yfir í allan vetur og og best að fara í lobbaleista. Það þýðir ekkert annað en vera vel smurður því þeir eru stórhættulegt vopn sérstaklega ef þeir springa. Þá fer maður að ganga einkennilega svo að maður geri ekki gat á skóna.Það er kostur að ég gæti eflaust varið mig með hælunum ef það yrði ráðist á mig! Maður verður alltaf að sjá björtu hliðarnar á öllu og þessu líka þegar maður skakklappast um á sprungnum hælum í blóði drifnum sokkum, nei ýki aðeins. En ef mann vantar upptakara þá er möguleiki að nota hælana.
Neyðin kennir naktri konu að spinna gott fólk. Verið glöð og góð við hvort annað.

Annars er það í fréttum að helgin var góð og Hákon kom hinn hressasti frá Reykjavíkinni og allt í blóma. Borðuðum góðan mat og létum okkur líða velfamilíunni.
Allir hressir utan við hósta. Baldur er að vísu að missa sig í tilhlökkun enda draumaferðin hans til Liverpool að bresta á. Hann ræður sér hreinlega ekki fyrir kæti.
Jæja bless í bili
Arna jákvæða;o)

föstudagur, október 06, 2006

Af því að þú ert eins og þú ert!


Góð lesning..... Þetta sendi elskuleg vinkona mín hún Bettý mér:o)

Gömul kínversk kona átti tvo leirpotta sem hún hengdi á sitthvorn endan
á langri stöng sem hún bar á öxlum sínum. Á hverjum degi sótti hún vatn
Langa leið í uppsprettu fjarri heimilinu. Annar potturinn var sprunginn eftir
endilöngu og var því aðeins hálffullur þegar heim kom. Hinn potturinn
var fullkominn og skilaði sér alltaf fullur af vatni eftir þessa löngu leið heim
að húsinu. Svona gekk þetta í tvo ár, daglega gekk gamla konan með
pottana að uppsprettunni og daglega kom hún heim með aðeins einn og hálfan pottaf vatni.
Auðvitað var fullkomni potturinn ánægður með sína frammistöðu en sprungni
potturinn skammaðist sín og leið mjög illa þar sem frammistaða hans var
aðeins til hálfs við það sem hann var skapaður til að gera. Eftir tveggja
ára vinnu talaði hann til konunnar við uppsprettuna. "Ég skammast mín
fyrir frammistöðu mína, vegna sprungunnar á hlið minni lekur helmingurinn af vatninu burt á leiðinni heim. Þú ættir að henda mér og fá þér nýjan
pott. En gamla konan brosti, "Hefur þú tekið eftir að þín hlið við götuna er
blómumskreytt á meðan engin blóm vaxa hinum megin götunnar?
Það er vegna þess að ég hef alltaf vitað af þessum galla þínum og þess
Vegna sáði ég fræum á þinni hlið götunnar og á hverjum degi þegar við göngum
heim vökvar þú blómin mín. Ég hef um árabil getað týnt þessi fallegu blóm og
skreytt heimili mitt með þeim. Af því að þú ert eins og þú ert þá hef
ég fengið að njóta fegurðar blómanna.
Það er eins með okkur manneskjurnar, enginn er gallalaus. En það eru
gallarnir og sprungurnar sem gera hvern og einn einstakann. Þess vegna
er svo spennandi að kynnast og eyða ævinni saman. Við þurfum bara að læra
að taka hverri manneskju eins og hún er og sjá jákvæðu hliðarnar hjá hvort öðru.

Jibbí


Jæja nú er Hákon minn að koma heim um helgina og tilhlökkun á bænum.
Hann hefur ekki komið heim síðan að hann fór í lok ágúst. Hann þarf að fá Skessugilsmat og fræða okkur hin um lífið sitt í borginni;O)Það er svo notarleg tilhugsun að hafa alla heima. Hann keyrir í kvöld en mömmuhjartað er aldrei rólegt þegar verið er að keyra á milli. Svona eru þessar mömmur alltaf hræddar um ungana sína! Viljar fer nú að fá prófið á næstunni og þá byrjar mömmuhjartað að stressast yfir því! Gott að það er langt þangað til að Júlía fer að keyra.En áður en að þau fara að keyra sjálf þá er maður í því að predika yfir þeim að passa sig á bílunum. Eitt tekur við af öðru eins og þið vitið þegar uppeldi er annars vegar;o)
Maður reynir að vernda þau fyrir öllu slæmu en það er víst ekki hægt því ekki getur maður haft þau í bómul alla tíð & það allir verða að fá reka sig á í lífinu og læra af því! Maður vonar bara það besta;o)
Jæja best að nýta morguninn og læra því að nóg er að gera í því!
Bless í bili
Arna mömmusína

fimmtudagur, október 05, 2006

Nokkrar blandaðar!



<








Hér eru nokkrar blandaðar myndir af familíunni frá síðustu árum;o)

þriðjudagur, október 03, 2006

Ummmm


Svona ilmnvatn mundi rokseljast!

Samskipti & húmor,o)


Sæl veriði.
Ég sit ég reitt og tætt í sauðalitunum( er ekki búin að setja upp andlitið:) yfir mínum skólabókum eins og oft áður. Efnið er um samskipti manna á milli. Ég hef því lagt höfuðið í bleyti og spekúlerað mikið og margt. Maður leitar í góð samskipti og forðast það sem maður heldur að geti orðið leiðinleg samskipti.En stundum þegar maður hefur búist við leiðindum fær maður óvænt eitthvað skemmtilegt!
Að hafa húmor er eitt af því mikilvægasta og þá ekki síst að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Stundum er hægt að hlægja sig máttlausan af einhverju eftir á þó að á þeirri stundu sem að það skeði hafi manni þótt það allt annað en fyndið.Eins og þegar ég á góðum "pæjudegi" fleytti kellingar eftir gólfinu í Hagkaup og hálfrotaðist undir fatahengi.Á þeirri stundu þótti mér það bara alls ekki fyndið og hló ekki fyrr en ég sagði einhverjum frá því sem sprakk úr hlátri og sagði" ekkert smá mislukkuð gella" haha.Þá fór ég að sjá þetta fyrir mér!
Það er svo gott að hlægja og þá manni líður svo vel. Stundum hlær maður svo mikið að manni verður illt í maganum en sálin gleðst. Það að geta séð spaugilegar hliðar á hversdagsleikanum er mikils virði. Þess vegna segi ég hlægjum og hlægjum sem mest!
Því að hláturinn lengir lífið það er ég sannfærð um. Það er hægt að hlægja sig frá ótrúlegustu vanlíðan í góðum hóp. Að geta hlegið með einhverjum segir margt & víða leynast góðir húmorgullmolar þó að maður þurfi stundum að leita,O)
Fólk kemur sífellt á óvart!
Bless í bili Arna