föstudagur, maí 11, 2007

Keppnin í gær!


Ég horfði með öðru auganu á júróvísion í gær og ég býst við að það hafi fleiri gert. Það er ekki undarlegt að keppnin sé oft kölluð fríksjóv. Þegar ég horfi á hana er ég stærstan hluta af tímanum með kjánahroll, þetta er oft svo hryllilegt eða bara sorglegt. Liðið oft rammfalsk og þetta líkist oft fyrstu þáttunum af idol (sem eru reyndar skemmtilegastir) þar sem maður fær að sjá verstu keppendurna. Margir virðast svo sannarlega lifa í mikilli sjálfsblekkingu og ofmeta hæfileika sína þar eins og reyndar þarna...........

Nú síðustu júróvisíonkeppnir virðist vinsælast að berja sem mest og fastast á trumbur, alveg síðan Ruslana gerði það, en mér fannst hún reyndar alveg hundleiðinleg, eða þá að vera með sem furðulegasta lúkkið og sjóvið. Mér finnst þetta vera þannig orðið að keppnin á minnst skylt við söngvakeppni, því eins og ég sagði áðan getur stór partur keppenda ekki sungið og þetta líkist oft frekar því að stigið sé á rófuna á ketti þegar þetta lið er að reyna að koma frá sér kannski bæði leiðinlegu og óskiljanlegu lagi. Eirikur og co stóðu sig ágætlega og fleiri sem ekki komust áfram því það virðist vera orðið þannig að þetta er bara einhver júróvísionpólitík og klíkuskapur milli landa. Ég var bara fúl fyrir Íslands hönd!

Það sem stóð upp úr eftir að hafa horft á þessa skelfingu voru kommentin frá Sigmari kynni, hann er alveg kostulegur og gaman hvernig hann kynnir keppnina. Allir að horfa á laugardaginn haha!!!

Jæja nóg bull frá mér í bili

Arna

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home