þriðjudagur, maí 01, 2007

Maí


Jæja nú er maí kominn og bara stutt eftir af skólagöngunni í Kennó. Það eru blendnar tilfinningar sem bærast í brjóstinu þegar þessu er að ljúka. Gott að ná þessum áfanga en samt erfitt að hugsa til þess að nú fer hópurinn í sitthvora áttina. Sterk vináttubönd hafa orðið til og margt gott fólk hefur orðið á vegi manns á þessum tíma. Þessi tengsl vill maður halda í og ég vona að þau verði sterk í framtíðinni. Allt er breytingum háð og lífið er vegferð sem er síbreytileg. Ég er þakklát fyrir þessi ár og það sem þau hafa gefið mér. Því vil ég þakka þeim sem hafa fylgt mér á þessari leið og óska þeim alls hins besta:O)
Knús Arna

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Koss og knús til þín héðan af Háteigsveginum.

Við eigum alltaf eftir að fylgjast að :-D
Eftir 4 skemmtileg ár þar sem við höfum verið samferða í þessu striti þá höldumst við auðvitað í hendur í því sem mætir okkur í framtíðinni.
Tíminn hefur sannarlega verið skemmtilegur og þau vináttubönd sem hafa myndast, stykjast vonandi með árunum og eiga eftir að veita okkur ómælda gleði og þakklæti í lífinu..

Takk fyrir að vera til.

01 maí, 2007 22:55  

Skrifa ummæli

<< Home