miðvikudagur, júní 14, 2006

Allt á fullu!


Fjör í kotinu, verið að baka og undirbúa útskriftina og karlinn er sveittur úti að koma pallinum langþráða upp! jibbí. Það er bara allt að gerast þessa dagana:o)
Semsagt allt gott að frétta héðan frá okkur!
Við mæðgur erum alltaf að safna að okkur myndum og vorum ánægðar þegar við fundum ægilega sæta mynd af skjaldbökuunga sömu tegundar og Nemó! Látum hana fylgja með svo allir sjái hvað maður hefur verið mikið krútt og er reyndar enn;O)

mánudagur, júní 12, 2006

Sætir!


Krútt!

mánudagur, júní 05, 2006

Helló

Jæja það er tími til kominn að koma sér að því að skrifa. Skólinn búin og bara að bíða eftir einkunum! Viljar og Júlía komu vel undan vetri í skólunum sínum og næst á dagskrá er svo útskrift Hákonar míns þann 17. júní. Alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt! Mér finnst ekki langt síðan að ég fékk hann fyrst í fangið á heitri yndislegri sumarnótt fyrir næstum 20 árum.Hann er fæddur á sumarsólstöðum þegar dagurinn er lengstur. En nú er litli strákurinn minn orðinn fullorðinn og Viljar minn er að fara að taka bílpróf.!Júlía prinsess svo að fara í annan bekk næsta vetur og mér finnst skrýtið að ég sé allt í einu orðin 38 ára.
Þegar maður var unglingur fannst manni tíminn oft sniglast áfram, maður beið eftir því að verða 12. ára og mega vera lengur úti, svo að fermast, verða 16, taka bílpróf o.s.f.v.
En núna áttar maður sig á að kannski er maður hálfnaður með líf sitt, skrýtin tilhugsun! Ég hugsa um hvað ég hefur verið lánsöm og heppinn í lífinu og er þakklát fyrir allt sem það hefur gefið mér:0)Vonandi hef ég líka lært á þeim mistökum sem ég hef gert;0)
Það eru mikil forréttindi að upplifa heitustu óskir sínar rætast og fá að tækifæri til að lifa hamingjusömu lífi!
Jæja bless í bili
Arna