þriðjudagur, janúar 31, 2006

Þriðjudagur


Hæhalló.
Gaman að sjá að allir eru færa sig upp á skaftið í tækninni. Klara hefur nú bæst í hópinn!
Mér líst vel á þessa hugmynd hjá Öldu að halda uppi lokaðri vinkonusíðu sem hægt er að bulla á!!!
Gaman væri að rifja upp gamla takta og pesónur t.d. Hadda og Lillu, Krippið í frystinum, Kellingaleikinn þar sem reyktar voru saltstangir af miklum móð og pöntuð bleik dress úr Freemans!og fleira gamalt og gott. Það er hægt að spjalla um gamla danstakta sem fóru fram bæði utan og innandyra, minnistæðar útihátiðir, hár og fatatísku, og fleira og fleira. Við verðum að reyna að finna okkur t.d. tíma í vor eða sumar og hittast allar! Ég sakna ykkar allra og vil hér með þakka ykkur öllum fyrir gamlar og góðar stundir og vináttu. Kiss Kiss allar!! Það hafa allir verið svo uppteknir síðustu ár og eru enn en núna látum við það ekki stoppa okkur er það? Finnum okkur tíma! Arna

föstudagur, janúar 27, 2006

Annar góður!

Einn góður!

Föstudagur!

Jæja líðanin skárri eftir góðan nætursvefn, sem betur fer! Eitt það leiðinlegasta sem ég geri er að hanga lasin. Drekk heitt te og kaffi, borða vítamín og drekk orkute.Allt til að losna við þetta. Ætla að kúra í dag, reyna að lesa dálítið í skólabókum og taka það bara rólega. Vonandi verð ég fín á morgun, Baldur búinn að taka sér frí í vinnunni á morgun og er byrjaður að skipuleggja matinn fyrir laugardagskvöldið í samráði við hina kallana. Nóg komið af pestargangi í vetur. Ælupesti og þetta. Ég reyni að passa á mér magann svo að ég fái ekki krampa og það gengur bara nokkuð vel. Ég hef þó fengið slæma krampa nokkrum sinnum í vetur en nóg um þau leiðindi ;0(
Annars er ég í besta skapi, fallegt veður og bjart, það er alltaf svo gott að sjá sólina eins og það sé komið vor! Mann langar bara að þvo allt og hengja út á snúru. Skrýtið hvað mér finnst gaman að hengja út þegar fer að hlýna, eitthvað svo notarlegt að horfa á þvottinn sinn úti á snúru! Kannski er ég bara pínu klikkuð en það er þá bara allt í lagi:0) Gott að geta séð það fallega sem leynist í þessum hversdagslegu hlutum, eins og núna þessa stundina situr Kútur litli á prikinu sínu með höfuðið undir væng og sefur vært, Nemó er að fá sér kríu á steininum sínum með litlu sætu rúsínuaugun sín og hann Hákon minn steinsefur í sínu rúmi, allt voða friðsælt á bænum meðan hinn hluti fjölskyldunar er í vinnu og skóla. Á eftir týnast þau svo heim og algengt er að Viljar og Júlía komi raulandi inn úr dyrunum sem er voða notarlegt að heyra og sýnir það að dagurinn hefur verið góður:0) Þau eru lík með þetta öll systkinin;0) Demantarnir mínir!
Kveð í bili.
Arna

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Lasin!

Ekki mínir bestu dagar í gær og dag, er lasin.0( Ekki alveg að nenna því. Komst ekki í vinnuna í morgun og lá heima með samviskubit eins og ég fæ alltaf ef ég kemst ekki í vinnuna. Hálsbólga, höfuðverkur og snýterí. Vonandi verð ég betri á morgun:0) Ekki get ég hælt spegilmyndinni mikið, eins og undin tuska og mygluð í meiralagi! Jæja nóg í bili, ætla að halda áfram að drekka heitt og fara undir sæng í rólegheitum. Vonandi hressilegra blogg á morgun.
Kveðja Arna

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Eitt eftirlætisljóð!


Einræður Starkaðar

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka


Einar Ben -



Um kærleikann

Hvað er kærleikur?

Kærleikur
er hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur
er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur
er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur er að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur er umhyggja fyrir öllu því sem lifir.
Kærleikur er að biðja fyrir öllum góðum og slæmum.
Kærleikur er að vera sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur er að dæma ekki.
Kærleikur er ljósið í hjarta þínu.

Hitt og þetta

Jæja þá er ég loksins búin að fá að vita hvert ég fer í verknám;0) Í sérdeildina í Síðuskóla en þar á ég góða vini:0)Sátt við þessa niðurstöðu og spennandi að byrja í næsta mánuði. Við förum tvær þangað,ég og Júlíana.
Héðan er annars að frétta að einhver pestargangur er að stinga sér niður hér á heimilinu sem betur fer gerist þó ekki oft. Gott meðan það eru bara einhverjar pestar en ekki eitthvað verra. Annars er þetta víst ansi algengt á heimilum bæjarins þessa dagana. Fólk hóstandi og hnerrandi eða hlaupandi á kamarinn!
Það var gaman í vinnunni um helgina eins og oftast enda tel ég mig heppna að hafa valið mér þennan starfsvettvang:0) í lífinu og er svo heppinn að að vera þar frábærum hóp! Það sem maður gefur af sér í vinnunni fær maður svo margfalt til baka ;0) Nú er ég að verða pínu væmin en þetta er svo sannarlega satt!

Jæja úr einu í annað.
Það er stefnt á um helgina að bregða undir sig betri fætinum og við nokkrar ætlum að dingla okkur saman seinnipart laugardags:0) Jafnvel að skella okkur kellingarnar á bretti í fjallið og vona það besta. Get kannski rænt bretti af öðrum hvorum syninum ef þeir treysta mér;0)
Reyna svo að lappa upp á útlitið svo við verðum frambærilegar þegar sætu kallarnir okkar verða búnir að elda einhvern góðan mat handa okkur. Spurning með hvort minn leggur til við kengúruna eða dádýrið sem er í frystinum! Sjáum til hvað þeir bjóða okkur skvísunum upp á.En það verður örugglega eitthvað gott! Góður matur handa góðum konum!
Best að hætta þessu blaðri og reyna að gera eitthvað af viti t.d. brjóta saman þvott og læra dálítið áður en prinsessan kemur heim því ég var búin að lofa að horfa með henni á vin okkar Svamp Sveinsson þegar hún kæmi úr skólanum. Alltaf gaman af Svampi! Kemur manni alltaf til að hlæja!

Bið að heilsa, Arna

föstudagur, janúar 20, 2006

Ljóðið um gjöfina.


Smá til umhugsunar

Ég veit ekki hvort þú hefur
huga þinn við það fest.
Að fegusta gjöfin sem þú gefur
er gjöfin sem aldrei sést.

Ástúð í andartaki
augað sem glaðlega hlær
hlýja í handartaki
hjarta sem örar slær.

Allt sem þú hugsar í hljóði
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði
sakleysi fegurð og yl.

Bóndadagur

Heilan og sælan bóndadag.0)
Hvað getur maður gert fyrir bónda sinn í dag? Hann var farinn út kl 6 í morgun, stokkinn í ræktina( sem er gott mál) og ég sé hann ekki fyrr en að ganga 12 í kvöld en þá er ég búin að vinna! Reyni að bæta honum það upp seinna, leyfi honum kannski að sjóða sér feitt saltkjöt og baunir túkall einhverntíma í vikunni! Ég fór svo sjálf í ræktina í morgun og kom heim hress og endurnærð að venju. Tiltekt og sama fjör og venjulega þegar heim var komið. Kannast einhver við það?
Er nú að bíða eftir að dóttirin komi heim úr skólanum svo við getum lagt hala á bak okkar og farið og keypt mat handa feitabollunni okkar(Þessari með skelina) Hann er mikið farin að þrá rækjur þessi elska held ég;0) Kútur heldur mér selskap hér við tölvuna og varð svo frægur að segja fyrsta blótsyrðið sitt í morgun, lærði það af einhverjum hér á heimilinu, einn er sterklega grunaður sem notar það bara nokkuð oft. Bóndinn á bænum og orðið er andskotinn! Skammaði svo sjálfan sig heil ósköp á eftir og hló hlakkandi. Alltaf fjör í Skessó og allir bara hressir:0)
Kveðja Arna

Endilega svarið þessu um mig :0)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/n af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Stress!

Ég er að verða dálítið stressuð yfir þessu verknámsmáli, það er bara ekkert að gerast:(
Svo var ég að biðja um sumarfrí í ágúst en yfirmanneskjan getur engu lofað! Krossa fingur fyrir því því annars verður þetta eitthvað vesen því ferðin er ákveðin!
Jæja ekki þýðir að kvíða fyrr en á dettur! Oftast reddast hlutirnir nú einhvernveginn:)
Annars hefur dagurinn verið fínn, ræktin og fastir liðir, engin vinna í dag en byrja í törn á morgun!
Keypti mér garn áðan og ætla að vera myndarleg í prjónaskapnum en aðalvandamálið er að finna tíma en alltaf gott að hafa bjartsýnina að leiðarljósi:)
Þessa stundina er söngskemmtun í stofunni hjá mér í boði Júlíu og vinkonu hennar og mikið stuð.
Það er best að fara að horfa á showið og lesa svo í fötlunarfræði þegar það er búið.
Bæ í bili. Arna

miðvikudagur, janúar 18, 2006

Miðvikudagur

Jæja Dagurnn hefur verið góður hingað til og nóg að gera, ræktin í morgun, verslaði og nú er ég hér er sveitt að reyna að koma skikki á skóladótið, þvo þvott, brjóta saman, ganga frá , moppa gólfið og lesa fyrir skólann, líta eftir heimalærdómi afkvæmanna og fleira. Mér dettur alltaf í hug herpresturinn í Góða dátanum Sveik ( ef þið hafið lesið hann, þetta er einkabrandari okkar mömmu!)þegar maður er að gera margt í einu eða vera með kolkrabbasyndrome(armarnir allsstaðar).Mikið held ég að karlinn minn verði glaður þegar hann les þetta;) kella svo dugleg í heimilsverkum hahaha....hann getur tekið út verkin þegar hann kemur heim:) þessi elska. Jæja það er best að halda sér við efnið og kveikja á uppþvottavélinni, húrra fyrir nútíma heimilistækjum!!! Ég hef oft hugsað um hvernig lífið væri ef maður hefði ekki þessi þægindi sem maður hefur.Ef öldin væri önnur t.d. sú 19ánda væri ég lotin í baki út við læk á sauðskinnskónum með loppna fingur að skola úr ullarbrókum heimilisfólks, eflaust örðin tannlítil og grá fyrir hærum. Ekkert sérstök tilhugsun:0( Það er því best að meta allan þennan lúxus sem maður hefur til að létta sér lífið. Með þessum orðum kveð ég í dag!
Bæ Arna

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Hæjó

Jæja nú er ég húsmóðirin á heimilinu að taka til við bloggeríið, hversu mikið það verður veit nú enginn.
Baldur á eftir að hlæja eitthvað af því hvernig ég titla mig svo mikið er víst:)
Nú er námið mitt að hefjast á ný og ég bíð enn þá eftir því að fá að vita hvert ég fer í verknám!
Það er ekki um auðugan garð að gresja.( Þetta reddast þó örugglega á endanum! Ég er þó að vonast til að komast í verknám í t.d.VMA því þar er EINN þroskaþjálfi sem vonandi tekur nema.....
Hákon er í sínum prófum núna, situr sveittur yfir skólabókunum, Viljar komin á Listnámsbraut í VMA, skipti af því að fann sig ekki alveg í matreiðslunni! og Júlía fékk þennan fína vitnisburð í gær frá kennaranum sínum svo hér eru allir í góðum málum;0)
Jæja nóg komið af pruferíi og ég ætla að reyna að vera dugleg að skrifa:)
Kveðja Arna

laugardagur, janúar 14, 2006

Netfang

Sælt veri fólkið, við höfum verið með tvö mail alltaf í skessugilinu, en endilega notið skessugil@internet.is þegar ykkur liggur eitthvað á hjarta.!

kvBaddi

Jæja þá skellum við þessu af stað aftur, Taka 2

Jæja nú er fjölskyldan að hugsa um að ná einhverju viti í þetta blog aftur og eins að virkja myndasíðurnar, svona svo að gestir og gangandi geti nú fylgst með því sem fram í gili Skessunnar.!