fimmtudagur, maí 10, 2007

Skólinn búinn!


Jæja þá er skólinn búinn, síðasta verkefnið fór í póst rétt áðan! Ég trúi því varla!

Ég hélt að ég myndi verða eins og sprungin blaðra þegar ég væri búin að skila en stresshnúturinn situr sem fastast:O( Ætli hann verði ekki þarna þangað til einkunnir eru komnar.

Jæja en nóg um það ekkert hægt að gera við því svosem úr þessu.Það er bara að bíða og sjá hvað verður.


Annars er það að frétta héðan að allir eru bara hressir á bænum. Ég hef nóg að gera þó skólinn sé búin því nú tekur við að borga skuldir sínar í vinnunni. Það eru nokkrir sem eiga inni hjá mér tíma eftir að hafa reddað mér í sambandi við skólann!!!


Nú fer vonandi sumarið að koma, við fengum smá sýnishorn um daginn og það gaf manni drauma um notarlegar stundir í lauginni og pallinum:o) Svo styttist líka í spánarferð í sem er ekki slæmt og notarlega daga í steikjandi hita og sól. Maður fær þá allavega sól þar ef hún verður eitthvað sparsöm hér á landi blessunin. Svo er nýjasta búbótin hér á bænum tjaldvagn sem eflaust verður vígður á einhverjum góðum degi.

Það er semsagt ýmislegt spennandi í vændum á næstunni hér í Skessukoti.

jæja þetta er nóg í bili ég held að það væri ráð að gera eitthvað af viti og reyna t.d. að taka til í skápunum sínum en óneitanlega hefur ýmislegt setið á hakanum á þeim vígstöðvum að undanförnu vegna anna.

Ég kveð þá í bili með sól í hjarta;o) -og fer að taka úr þvottavélinni!!!!

Knús og kram til ykkar

Arna

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home