mánudagur, febrúar 13, 2006

Takk fyrir mig!

Kossar og knús til ykkar og takk fyrir fallegar kveðjur!

K dagurinn

Jæja þá er hann runninn upp K dagurinn í mínu lífi, semsagt í dag næ ég hátoppi kynþokkans.;0) eða svo er sagt. Ekki að ég finni mikinn mun á mér síðan í gær.
Aldur er afstætt hugtak finnst mér, ég held að aldur skipti engu máli, bara að vera sáttur við sjálfan sig, hugsa vel um sjálfan sig og bera virðingu fyrir sjálfum sér.
Það fer alveg ósegjanlega í taugarnar á mér þessi æskudýrkun í umhverfinu, er ég ekki alveg sama manneskjan og fyrir 20 árum? Það vilja allir verða gamlir en enginn vera það!
Það er eins og manni sé vorkennt að eldast! Aumingja þú að vera orðin 38 ,0(ég bara skil ekki svona. Ég er sátt er það ekki málið, af hverju ætti ég ekki að vera það? Ég er glöð yfir því að fá að sjá börnin mín vaxa úr grasi því það fá nefnilega ekki allir tækifæri til þess! Það eru forréttindi að vera heilbrigður gleymum því ekki!.
Það er nefnilega umhverfið og menningin sem gerir fólk oft óánægt því það er eins og það eigi að vera ósátt af því það er ekki svona og hinsveginn. Leiðinda aðfinnslur og skot geta gert ánægða mannesku óánægða og hver græðir á því? Enginn held ég! Ef aðrir eru ekki sáttir við mann eins og maður er þá er ekkert með þannig félagsskap að gera er það? Þetta er mín skoðun og ef einhver vorkennir manni svona mikið af því að maður eldist þá má hinn sami bara halda því fyrir sig,0) Það vantar bara að Baldur fái sent samúðarskeyti því kerlingin sé bara komin á seinasta snúning haha.,
Jæja nóg í bili um þetta!
Bestu kveðjur Arna

Árspáin mín!

Ársspá 2006
- Svartsýni - Til baka í samskiptum - Snertiþörf mikil Satúrnusarfólki, eins og þér, er ráðlagt að leyfa sér ekki að vera svartsýnt í janúar, febrúar, mars og apríl 2006. Þú leitast vissulega við að lifa eftir skoðunum þínum og vilt geta gert allt sem þig langar til, með litlum fyrirvara, án þess að þurfa að eyða tíma þínum í réttlætingar en átt það til að vera svartsýn/n þegar hlutirnir ganga ekki upp eins og þú kýst. Satúrnus á það til að valda börnum sínum þunglyndi, tortryggni og svartsýni og þér er bent á að vísa slíkum tilfinningum alfarið á bug. Sérvitringar eins og þú falla reyndar ekki undir nenar hefðbundnar skilgreiningar og það á vel við stjörnu vatnsberans. En einnig fá hæfileikar þínir svo sannarlega að njóta sín í byrjun sumars þegar þú tekst á við nýtt verkefni. Þú gleymir aldrei því sem þú telur nauðsynlegt í þágu málstaðar eða fyrir almannaheill og það styrkir þig í fyrrnefndu verkefni þar sem kraftur þinn eflist. Veittu þeim hugmyndum sem þú færð á árinu sem í fyrstu virðast léttvægar sérstaka athygli. Þetta á enn frekar við þar sem þú ert að ræða mál er snerta náin kynni. Mundu að sektarkennd, ásakanir og ótti hverfa oft þegar þú skoðar hug þinn af einlægni. Þú leggur áherslu á heiðarleika árið framundan og veitir því til dæmis eftirtekt þegar þig langar að snerta einhvern (átt það til að hætta við á síðustu stundu). Næst hefurðu valkost, þú getur snert, eða sleppt því. Áttaðu þig líka betur á því þegar þú heldur aftur af orðum þínum. Opnaðu þig eru einkunnarorð vatnsberans árið 2006.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Söndag

Það er söndag hjá mér í dag , sit við og les danska bók um kynfræðslu fatlaðra. Þetta er hin merkilegasta bók sem ég á eflaust eftir að liggja vel og lengi yfir í verknáminu mínu;0)
Óskaplega lítið til um þetta efni á íslenskri tungu því miður því að þetta ætti að vera miklu aðgengilegra efni. En svona er þetta bara allt tekur tíma en dropinn holar steininn eins og sagt er.
Annars ósköp rólegur dagur í Skessó, kallinn og frumburðurinn að vinna, Viljar hjá vini sínum og Júlía er að skottast með vinkonu sinni. Vonandi fara einhverjir að skila sér heim, ég er að verða einmana hérna,( Sunnudagar hafa svo sem aldrei verið neinir uppáhaldsdagar hjá mér ég veit ekki af hverju. Samt eru rólegheit alveg nauðsynleg fyrir alla. Hafið það gott og njótið dagsins,0)
Kveðja Arna

laugardagur, febrúar 11, 2006

Til barnanna minna.


Elsku börnin mín.

Ást mín verður með ykkur hvenær sem þið þarfnist hennar.
Ást mín verður með ykkur þegar gleðin ber ykkur ofurliði.
Ást mín verður með ykkur þegar erfiðleikarnir eru að buga ykkur.
Ást mín verður með ykkur þegar þið óttist lífið.
Ást mín verður með ykkur í dag og alla daga.

Mamma.

föstudagur, febrúar 10, 2006

FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR

jæja löng og strembin vika liðin, það hefur verið brjálað að gera á öllum vígstöðvum. Verknámið og vinnan, verkefnaskil og miklar pælingar. Langar voða mikið að hafa það gott um helgina og gera eitthvað skemmtilegt fara t.d. út að borða eða eitthvað!Það hefði verið gaman! Það verður þó eflaust lítið úr því, verð að læra eitthvað og Baldur er busy alla helgina.Kannski seinna.
Strákarnir eru að brasa í sínu svo ætli við Júlía horfum ekki bara á Madagaskar. Mamma gaf mér ferlega sæta peysu í afmælisgjöf sem hún er búin að sitja sveitt yfir að klára, smá sæt í sér alltaf hún mamma mín:0) Jæja nóg í bili er farin að taka til jibbí jej maður hefur alltaf eitthvað við að vera! Kveðja Arna

föstudagur, febrúar 03, 2006

Munið þetta!

There is no one else
Who is exactly like you
With your hopes and your dreams
And your memories too
Your uniqe talents
Your voice and your face
And so many things
No one else could replace.


Hafið þetta í huga ;0)

Helgin framundan.

Jæja fyrsta heimsóknin á vettvangsstaðinn minn búin. Mér leist bara mjög vel á og við vorum þar fram að hádegi. Förum næst á mánudaginn,0) Ég hlakka bara til!
Nóg að gera í dag hér heima í dag og svo er það bara vinnan klukkan fjögur og öll helgin svo það verður eflaust lítið um skriftir frá mér næstu daga.0) enda nóg að gera.
Vonandi hafið þið það gott um helgina.0)
Kveðja Arna

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Sálarfóður!

LOFAÐU SJÁLFUM ÞÉR

Að láta alla vini þína finna að þeir séu mikils virði.

Að horfa á bjartari hliðar lífsins og að láta óskir þínar rætast.

Að hugsa aðeins um það besta, vinna að því besta og búast við hinu besta.

Að vera jafn áhugasamur um velgengni annara, eins og þína eigin.

Að gleyma mistökum fortíðarinnar og stefna að betri árangri í framtíðinni.

Að vera alltaf glaðlegur og eiga bros handa öllum þeim sem þú mætir.

Að gefa þér svo mikinn tíma til að þroska sjálfan þig að þú hafir engan tíma til að gagnrýna aðra.

Að vera of stór fyrir áhyggjur, of öruggur fyrir reiði, of sterkur fyrir ótta og of hamingjusamur til að leyfa vandamálum að festa rætur.

Svona erum við mömmurnar!

Mamma er:

Móðir
kona
verndari
læknir
töframaður
kokkur
spæjari
skipuleggjandi
sálgreinir
bókhaldari
þjálfari
skurðlæknir
skemmtikraftur
sáttasemjari
leikfélagi
þvottakona
hugvitskona
einkaþjálfari
lífnautskona
kennari
ástmey
fyrirmynd
ást hennar er skilyrðislaus

Svona erum við nú hæfileikaríkar!!!!!

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Heelú


Líf og fjör á kellu í dag og allt á spani. Verkefnavinna, Júlía til tannlæknis í skoðun, stússaðist með móður mína, tiltekt, þvottur, lærdómur og fleira. Sjá meðfylgjandi mynd af gauragagnum!

'Ég hló þar til ég lagðist á koddann í gærkvöldi, datt inn í æskuminningar eftir að hafa komist á flug eftir þessi fleygu orð frá Klöru um móðurina í kví kví og eggjabrauðið;0) Hvernig var nú aftur lagið sem þær systur sungu hér um árið: Undir jöklabráð, undir jöklabráð, rennur vatnið, vatnið, vatnið ...........og fleira. Ákveðin útihátið á austurlandi var þar fersk í minningunni, okkur sem þar voru til mikillar upphefðar !!!! eða var það ekki?
Fermingarföt ákveðinna kvenna með í för sem áttu samt eftir að gleðja eiganda stutt því að aðrir höfðu greinilega ágirnd á þeim;0( Grátbólgnir hvarmar sumra eftir kynni af ákveðnu tjaldi kennt við dauða og hælför í grasi, hár klesst við tjaldvegg og svo mætti lengi telja ,æðislegt!!!! Grease æðið er stór partur af þessum minningasjóð, tala þá ekki um blessaðan Grease jakkann sem var ábyggilega keyptur í loftinu á Sigga Gúmm, aðalbúðinni! Var maður aðalskutlan eða? Sungið í kertastjaka árum saman eða eitthvað annað tilfallandi, óteljandi tískusýningar og fjör. alltaf fundum við okkur eitthvað að gera!
Þetta er bara örlítið brot af því sem fór gegn um hugann í gærkvöldi!
Endilega rifjið upp gamlar minningar ;) það er svo gott fyrir sálina.
Kveðja Arna