Afkvæmin :oD , mömmupistill og nokkrar myndir úr safninu



Ég sit hér á sunnudagsmorgni og horfi á dóttur mín sitja með ljósgyllta hárið sitt horfandi á sjónvarpið, hún er að ferðast um heima ævintýra og prinsessa með sjónvarpinu og sér sig í þeirra sporum. Það er gaman þegar hún skottast og snýst í frumsömdum danssporum um gólfin, syngjandi og njótandi þess að vera til. Manni hlýnar um hjartarætur þegar börnin manns eru svo frjálsleg og njóta þess einfaldlega að vera börn og eru óhrædd við það að skapa sér heim í huganum þar sem þau geta gert hvað sem er.
Þegar bræður hennar voru pollar voru það annarskonar hlutverk sem þeir völdu sér í sínum draumaheimum. Þeir svifu um með sverð, grímur og skikkjur, léku Batman, Turtles og fleiri góða, undu sér tímunum saman í "kalló" og nutu þess að spinna upp ævintýri eftir því hvernig lá á þeim. Alltaf að bauka eitthvað með vinina kringum sig og allt í fjöri.
Ég sé þá líka fyrir mér, annar með ljósan koll og hinn með húmdökka hárið sitt brasandi við að berjast með legóköllunum sínum í kastala með tilheyrandi leikhljóðum. Hjá dömunni eru leikhljóðin líka til staðar en eru bara önnur:oD
Allar svona minningar sem eru ljóslifandi í huga manns hlýja manni um hjartarætur og að horfa á börnin sín glöð og örugg fyllir hjarta manns hamingju.
Það er eins og þegar maður horfir á börnin sín sofa, ekkert er eins róandi og friðsælt.
Mér finnst ég alveg afskaplega rík kona og er svo þakklát fyrir það að fá að vera mamma barnanna minna því ekkert í heiminum jafnast á við það og ekkert gefur mér meiri gleði.
Mín einlægasta ósk er að lífið verði þeim ávallt gott, þau hamingjusöm og sátt við lífið og tilveruna. Ef börnin mín eru hamingjusöm þá er ég líka hamingjusöm:oD
Mömmuknús
Arna
Efnisorð: http://bp0.blogger.com/_b9zvbo2HdDY/SBROrefFtxI/AAAAAAAAAFE/RQ7qXSE6qWk/s320/DSC01221.JPG



