miðvikudagur, maí 30, 2007

lífið er lotterí



"Lífið er lotterí og ég fer brátt í frí" ég komst loksins að því í gær hvenær ég fer í sumarfrí en það er 11. júní og ansi stutt í það. En það verður ósköp gott að komast í frí eftir allan hamaganginn í vetur og vor:o).



Aðrar fréttir eru einnig þær að næsta vetur mun ég starfa á nýjum stað og kveðja mína ástkæru Skammtímavistun þar sem ég hef átt svo margar góðar stundir á svo marga vini sem mér eru kærir. En það er nú bara svona, lífið býður upp á svo margt sem vert er að reyna og prófa. Einnig verður það mikil breyting að vera meira heima á kvöldin og um helgar eins og hinir fjölskyldumeðlimirnir.


Hákon minn er nú fluttur á stúdentagarðana og leigir þar með vini sínum þett a fína slot og þeir eiga eflaust eftir að hafa það ljómandi gott þar herrarnir næsta vetur. Það er sem betur fer ekki ekki langt í burtu, bara þarnæsta gata:o). Hann er að vinna á leikskólanum Lundaseli og unir hag sínum vel þar með krökkunum auk þess sem að hann vinnur líka á Dóminos með Viljari á kvöldin og um helgar og af Viljari er það að frétta að auk þess að vera á Dómínos er hann líka að fara að vinna á bensínstöð svo það er nóg að gera í sumar hjá þeim bræðrum!


Karlinn er alltaf eins og útspýtt hundskinn um allar jarðir og nóg að gera hjá honum eins og venjulega;o) hann getur nú yfirleitt ekki setið kyrr nema kannski þegar við erum komin til útlanda, klesstur niður á sólbekk!


Júlía Birta gleðst yfir komandi sumri og fríi og ferðalögum og er hin hressasta.


Hér eru því allir í fínu formi þessa dagana sem betur fer;o)

Eitt heilræði í lokin: Take time to laugh for it is the music of the soul.





Mbk í bili Arna

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home