sunnudagur, nóvember 19, 2006

Hvað gengur fólki til?


Það er eitt sem ég skil ekki og það er hroki. Það að vera með óþarfa skot og afskiptasemi. Ég lærði það heima að svona væri til skammar og væri bara illa gert. Fólk getur haft sínar skoðanir á öðrum en getur bara haldið því fyrir sig ef það snertir ekki þeirra líf. Fólk sem er mikið fyrir að senda óþarfa skot og aðfinnslur á fólk og gjörðir þess ætti að íhuga það hvað það hefur fyrir t.d. börnum sínum með þessu og líta í eigin barm. Ég hef haldið mig við það að reyna að leiða svona hjá mér og hugsa bara að viðkomandi hljóti að vera eitthvað óænægður með sjálfan sig þegar hann hefur þörf fyrir að haga sér svona.
Virðing fyrir öðrum er mikilvæg dyggð en maður öðlast aðeins virðingu með því að virða aðra og líf þeirra og tilfinningar. Maður öðlast ekki virðingu með því að upphefja sjálfan sig á kosnað annarra. Ég er stundum alveg gáttuð á hvernig fólk getur hagað sér og látið út úr sér. Sá vægir sem vitið hefur meira er gott að hafa í huga þegar maður fær á sig svona skot.
Einnig er mjög hvimleitt þegar fólk þykist alltaf vita best og mest, ég held að oft sé það mikil minnimáttarkennd sem þar er undirliggjandi en það er mín skoðun.
Það er einu sinni þannig að enginn veit alltaf best!
Ég hef lagt mikið upp úr því að kenna börnum mínum það að virða mannhelgi hvers og eins og koma vel fram við annað fólk því að mikilvægasta þegar upp er staðið er að vera metinn sem góð manneskja sem öðrum líður vel að hafa í návist sinni.
Arna.

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Draumakjóll!


Ég fann draumakjólinn eða einn af þeim, nú vantar bara að láta einhvern sauma hann.
Mögulega er fallegt að hafa hann styttri, það eykur notagildið og kannski í öðrum lit.En ég væri á leiðinni að gifta mig í hvítu þá mundi ég velja þennan! Varð að deila honum með ykkur, hann er svoooo fallegur!!!!
Híhí Arna

fimmtudagur, nóvember 09, 2006


Hér sitjum við mæðgur við lærdóm önnur gluggar í fötlunarfræði og hin í samsett orð, allt í rólegheitum á bænum.
Litlar fréttir af þessum bæ, nema kannski þær að húsmóðirin á bænum (semsagt ég) fór dálítið flatt á því í vikunni þegar hún var að dekra við eitt ónefnt gæludýr heimilisins. Hún var semsagt að handmata viðkomandi á rækjum af mikilli góðmennsku þegar sá hinn sami sem er alþekktur fyrir græðgi missti stjórn á matarlystinni og endaði matartíminn á því að hann hékk á fingri sinna heittelskuðu húsmóður sem að hann hefur mikla matarást á. Þetta var svo fast (enda er munnur hans kenndur við rakvélblað)að blæddi úr svo nú var úr vöndu að ráða því að hann hefur aldrei bitið hana svona áður! Jæja endirinn var sá að þegar þessi væna húsmóðir var búin að ráðfæra sig við heilbrigðiskerfið endaði hún í
stífkrampasprautu.
Hann sýndi enga iðrun, synti bara hinn kátasti og bjóst svo til að bíta í plásturinn þegar honum var sýnt hvað hann hafði gert! Æi hann er nú alveg yndislegur!
Bless í bili Arna

laugardagur, nóvember 04, 2006

Lotan búin!


Jæja þá er enn ein skólalotan búin hjá mér í bili og sú síðasta fyrir áramót. Ég þarf ekki að fara aftur fyrr en seinnipart janúar. Svo verð ég eins og jójó milli Ak og Reykjavíkur fram að útskrift í júní sýnist mér!
Það er alltaf gaman að hitta alla í skólanum enda er þetta frábært fólk. Það sem eftir er af skólanum verður strembið tímabil. Það liggur mikið fyrir og lokaverkefnið okkar Margrétar er orðið ansi viðfangsmikið. Læknarnir sem eru að leiðbeina okkur eru alveg frábærir og það er svo greinilegt hvað þeir hafa brennandi áhuga á viðfangsefninu og vilja allt fyrir okkur gera.o)
Nú er bara að steypa sér á kaf og halda dampi. Stundum þyrmir yfir mig þegar ég hugsa um allt sem liggur fyrir í vetur en málið er að þetta er gaman. Mig vantar bara fleiri klukkutíma í sólarhringinn! Svo er það að pússla öllu saman svo vel gangi. Það gengur samt allt saman eins og venjulega;o)
Næst er að leggjast yfir lesefni um t.d. árangursmælingar, fagmennsku, stjórnun og auðvitað lokaverkefnistengt efni um fyrirbura og heilalömun.

En í dag er ætlunin að hafa það gott og borða góðan mat. Hákon er heima í helgarleyfi svo familían er öll heima, voða notarlegt:o)

Kósýkveðjur úr Skessó, Arna.