laugardagur, júní 30, 2007

Úr korti frá góðum konum;o)



"Það sem þú átt í vasanum er ekki mikilsvert- eingöngu það sem þú átt í hjarta þínu"
Þetta eru falleg og sönn orð
Knús Arna

miðvikudagur, júní 27, 2007

Það er vandlifað í þessari veröld!



þriðjudagur, júní 26, 2007

Smá til umhugsunar:o)


"Gleymið ekki gestrisninni, því vegna hennar hafa sumir sér óafvitandi hýst engla"
Hebreabréfið 13,2

Hóhó


Jæja nú erum við komin úr bústað á Illugastöðum þar sem við höfðum það alveg afskaplega gott um helgina. Tilefnið var ættarmót hjá Kambstaðaætt sem Baldur er í. Þetta var hið hressasta lið alltsaman og margt skemmtilegt gert:o) Potturinn var mikið notaður því við vorum afskaplega heppin með veðrið! Aðalfjörið var á laugardaginn en þá var fyrst farið í leiki með smáfólkinu um miðjan daginn og þar gekk nú ýmislegt á! Þar skiptist á hlátur og grátur og margir áttu erfitt þegar þeir sáu fram á að ekki er hægt að vinna í öllu! Einnig grétu sumir einnig yfir óförum foreldra sinna í leikjunum, haha! Fremur spaugilegir leikarnir þeir!
En svo um kvöldið var þessi fína grillveisla og þar val vel tekið til matar sín og svo var bara haft gaman, dansað og sungið við undirleik snilldar einsmannshljómsveitar!!!. Smáfólkið í hópnum var svo uppgefið eftir kvöldið og allan dansinn að það steinlá um leið og það lagðist á koddann, þarna á ég við Júlíu og sérsveitina, litlu mága mína :o). Þau eldri dugðu aðeins lengur! Utan við þetta fjör var bara etið og legið í pottinum, farið á göngu og svo skelltum við okkur á hvalasafnið á Húsó sem var mjög gaman.
Semsagt allt í fína hér í Skessugilshosiló

mánudagur, júní 18, 2007

Takk






Kæru vinir og ættingjar.
Ég vil þakka ykkur fyrir að koma og gleðjast með mér síðastliðin laugardag og fyrir allar góðu kveðjurnar sem ég fékk.
Þetta var alveg yndislegur dagur og minningin um hann á eftir að ylja mér um ókomin ár:o)
Knús og kossar til ykkar allra.
Arna