sunnudagur, júlí 30, 2006

Sunnudagur.


Jæja allt í rólegheitum hér á bæ og allir bara að dunda sér eitthvað í rólegheitum nema hann Viljar minn en hann er brunandi um bæinn með pepsi í bæjarbúa.
Partýið á föstudaginn tókst vel og´það var bara rosalega gaman. Enda er það eðalfólk sem með mér vinnur og allir í stuði.Drifum okkur svo niður í bæ og skelltum okkur á Kaffi Ak og Amor, sem var fínt en það er eitt sem að mér finnst alveg merkilegt á Amor en það eru klósettin en sú aðstaða er mínístærð. Eins gott að vera ekki í stærra lagi ef maður ætlar að bregða sér þangað! Allir partýgestir voru víst fremur þreyttir í gær eftir húllumhæið. Ég var allavega dauðþreytt í gær enda vakti ég til 4 en er vön að vera sofnuð um 11 á kvöldin haha ferlega léleg! Ég verð að fara að undirbúa mig undir næsta partý næstkomandi laugardag, árlegt verslunarmannahelgarpartý vinahópsins. Svo erum við að fá gest til okkar í dag sem verður hér næsta mánuðinn en það er Tumi ástarfugl úr Ránó. Kútur minn verður glaður að hitta vin sinn aftur og fá smá félagsskap sinnar tegundar!
Jæja bless í bili
Arna

fimmtudagur, júlí 27, 2006

Partý


Undur og stórmerki, það er partý í vinnunni hjá mér annað kvöld en það er mjööög sjaldgæfur viðburður en verður gaman að hittast aðeins utan vinnustaðarins.
Vinnustaður Baldurs hefur staðið sig betur í þessum málum hingað til og hefur haft fjörugra félagslíf! En gaman að þessu vonandi og gaman ef sem flestir mættu.o)
Karlgreyið mitt þrælar langt fram á kvöld þessi elska svo að við höfum nóg af skotsilfri fyrir ferðina okkar, já hann er svo sannarlega duglegur þessi elska.vonandi verður þó einhver orka eftir þegar að fríinu kemur!
Bæ í bili Arna

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Minning


Í dag langar mig að minnast elskulegs pabba míns hans Hákonar.
Pabbi minn var fæddur 13. október 1942 og dó fyrir 24 árum ekki orðinn fertugur.
Hann var besti pabbi sem nokkuð barn getur óskað sér að eiga, góður og blíður og sagði mér oft hvað honum þótti vænt um mig. Ég man enn hvernig var að leiða hann pabba minn, hvernig höndin hans var,hvað það var gaman þegar að hann synti með mig á bakinu og hvað það var gott að kúra hjá honum fyrir framan sjónvarpið. Hann var glaðlyndur og þótti gaman að syngja og hafði yndi af tónlist og góðum mat.o)
Ég hugsa oft um hvernig allt hefði orðið ef hann hefði ekki fallið frá en svona er lífið. Ég ákvað það strax að skýra barnið mitt eftir honum því hann var, ein sú besta manneskja sem ég veit um. Elsku pabbi minn ég sakna þín og elska þig alltaf.

"Einstakur" er orð sem notað er þegar
lýsa á því sem er engu öðru líkt,
faðmlægi eða sólarlagi,
eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd.
"Einstakur" lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annara.
"Einstakur" á við þá sem eru dáðir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
"einstakur" er orð sem best lýsir þér .


Þín dóttir Arna

föstudagur, júlí 21, 2006

Þá er það ákveðið.


Árlegur Verslunarmannahelgar-hittingur vinahópssins hefur verið ákveðinn laugardaginn 5.ágúst, og þá er bara að plana dagskránna og kaupa nestið!

Peningar!


Það sem peningar, peningamál og stúss er leiðinlegt umræðuefni ekki satt? Kannast einhver við það að peningar virðast oft fljúga bara burt sisona? Það er varla hægt að reka nefið inn í búð þá svífa þeir burt að methraða, þó að manni finnist maður fá oft ansi lítið fyrir þá! Svo þegar maður er að fara í sumarfrí eru peningar manni ansi hugleiknir því er ekki að neita og maður eyðir oft meiru svo maður kemst bara ekki hjá því að spá í þau mál!
t.d. er bensínkosnaðurinn þessa dagana fram úr hófi mikill, maður reitir bara hár sitt á bensínstöðinni í hvert skipti.
En maður þarf víst ekki að kvarta þó að maður sé ekki með fulla vasa fjár maður hefur nóg fyrir sig og sýna og þá er allt í fína!
jæja eigið góða helgi og verið glöð!
kveðja Arna

fimmtudagur, júlí 20, 2006

Anfield here I come


Jæja loksins stefnir í það að stóri draumurinn rætist, kallinn fer á Anfield. Ef allt gengur eftir og lágmarksþátttaka næst þá erum við að fara einn stór myndarlegur hópur Liverpoolmanna á Anfield í október í beinu flugi héðan frá Akureyri, allir áhugasamir eru beðnir að kynna sér málið á http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=351&idcat=15 , verstur er kostnaður við þetta því að það stefnir í að frúin krefjist Konu-Köben-ferðar í sárabætur, úff!


kv Baddi

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Úr Spámanninum





Falleg speki úr Spámanninum um börnin okkar!

Börn ykkar eru ekki börn ykkar
Þau eru synir og dætur lífsins
sem eiga sér sínar eigin langanir.

Þið eruð farvegur þeirra,
en þau koma ekki frá ykkur.

Og þó að þau séu hjá ykkur,
heyra þau ekki ykkar til.

Þið megið gefa þeim ást ykkar.
en ekki hugsanir ykkar,
því þau eiga sér sínar hugsanir.

Þið megið hýsa líkama þeirra,
en ekki sálir þeirra,
því að sálir þeirra búa í húsi framtíðarinnar,
sem þið getið ekki heimsótt,
jafnvel ekki í draumi.

Þið megið reyna að líkjast þeim,
en ekki gera þau lík ykkur.

Því lífið fer ekki aftur á bak
og verður ekki grafið í gröf gærdagsins.

Stúdent!

Sætasti stúdentinn og stolta mamman;o)!
Jæja sumarið hingað til hefur verið fjörugt. Útskriftin hjá Hákoni mínum gekk vel,veisla hérna heima á eftir og svo var farið út að borða í Höllinni, alveg frábær dagur í alla staði. Hákon er líka orðinn tvítugur og búin að fá vinnu í höfuðborginni næsta haust og Viljar orðinn 17 ára. Mér finnst afskaplega skrýtið að eitt að börnunum mínum sé að flytja að heiman og kvíði því mjög en þetta er gangur lífsins og ef börnin manns eru ánægð þá er maður sjálfur ánægður.

Jeminn hvað tíminn flýgur og hvað ég er stolt af ungunum mínum þrem;o)og þrái heitast af öllu að þau séu hamingjusöm.

Annars eru allir á kafi í vinnu á heimilinu en það styttist í sumarfrí og Mallorcaferð jíbbí!
Ég, Júlía og mútta skelltum okkur svo vestur í Ólafsvík en hún Debba bróðurdóttir mín var að gifta sig með pompi og prakt. Athöfin var afskaplega fjörug og veislan líka, fullt af skemmtiatriðum og smáfólkið í famílíunni fór á kostum í ræðuhöldum, söng og spaugi.
Jæja ég kveð í bili. Arna