þriðjudagur, janúar 16, 2007

2007!


Jæja með nýju ári koma ný verkefni og nýjar áskoranir sem er bara gaman. Skólinn að byrja aftur hjá mér og nóg af verkefnum sem fylgja honum! Næsta vika fer í lotu í Reykjavíkinni en það er fyrsta ferðin af fimm;o) Stanslaust stuð og stíf dagskrá í þeirri ferð. Svo byrjar vettvangsnámið sem er í febrúar og mars og er mjög spennandi að sjá hvernig það verður. Það verður semsagt nóg að gera hjá öllum næstu mánuði hér á bæ. Þetta er þó lokaspretturinn í skólanum hjá mér og það verður skrýtið þegar hann er búinn. Hann hefur skipað svo stórann sess í lífinu síðustu fjögur árin.

Annars hefur familían það bara gott og allir hressir.
Helstu fréttir þessa dagana eru að það verða allir heima um helgina því að Hákon ætlar að koma norður og fara svo suður aftur með mér á mánudag. Hann unir sér ágætlega í Reykjavíkinni en ætlar þó að koma heim í vor;o) Viljar er farinn að vinna á Dominos með skólanum og líkar bara vel;o). Júlía steig í fyrsta sinn á skíðin sín (sem að hún fékk í jólagjöf ) um helgina og skemmti sér vel.
Við skötuhjúin ætlum svo að skella okkur á þorrablót um helgina og ég hlakka svo til að fá rófustöppu;o) hjá Lionsmönnum.
Við ákváðum svo um daginn að nú í sumar ætlum við að sóla okkur á Costa del sol( ekki slæm tilhugsun það) með tengdó og co og það verður eflaust ljúft eftir annasaman vetur. Mútta mín ætlar líka að skella sér með okkur þangað þetta sumarið sem er frábært;o)
Jæja þetta eru helstu tíðindi af þessum bæ í byrjun árs.
Kveðja Arna



þriðjudagur, janúar 09, 2007

Um það að njóta lífsins núna!

Njótum líðandi stundar;o) og þess að vera til!

Þetta fann ég á netinu og þótti þetta athyglisverð lesning um lífið og viðhorfin. Endilega lesið þetta:o)


Við sannfærum okkur sjálf að lífið verði betra eftir að við giftum okkur,eignumst barn og síðan annað barn.
Síðan pirrum við okkur á því að krakkarnir verði nógu gamlir og við erum sannfærð um að við verðum betur stödd þegar að því kemur.
Næst erum við örg yfir því að við verðum að eiga unglinga.Við munum svo sannarlega verða hamingjusöm þegar því skeiði verður lokið.
Við teljum sjálfum okkur trú um að líf okkar verði fullkomið þegar maki okkar tekur til í sínum málum, þegar við fáum betri bíl, þegar við fáum tækifæri á að fara í gott frí eða þegar við setjumst í helgan stein.
Sannleikurinn er sá að það er ekki og verður aldrei betri tími til að vera hamingjusamur en einmitt núna. Ef ekki núna, hvenær þá?. Lífið verður alltaf fullt af áskorunum og viðfangsefnum. Það er best að viðurkenna þetta fyrir sjálfum okkur og ákveða að vera hamingjusöm engu að síður, á hverjum degi.

Óþekktur maður sagði:
Í langan tíma hafði mér virst sem líf mitt væri í þann mund að hefjast- hið raunverulega líf. En alltaf var einhver hindrun í veginum, eitthvað sem ég þurfti að eignast fyrst, einhver óútkljáð mál, mig vantaði tíma til að sinna hlutunum og alltaf voru einhverjar ógreiddar skuldir.Þá gæti ég loks byrjað að lifa lífinu. Að lokum rann upp fyrir mér ljós, þessar hindranir eru líf mitt.

Þetta sjónarhorn hjálpar okkur að sjá það að það er engin leið til að hamingjunni. Hamingjan er leiðin. Svo að varðveittu og lærðu að meta hvert augnablik sem þú átt. Lærðu að meta það meira vegna þess að þú deildir því með einhverjum sérstökum, nógu sérstökum til að eyða tíma þínum með...og mundu að tíminn bíður ekki eftir neinum.
Hættu að bíða, bíða eftir að þú klárir þetta eða hitt, eftir að þú missir nokkur kíló, eftir að þú náir á þig nokkrum kílóum, hættu að bíða eftir að þú eignist börn og barnabörn og eftir að börnin flytji að heiman, eftir að þú byrjir að vinna, að þú hættir að vinna, að þú giftist, að þú skiljir, eftir laugardagskvöldinu eða sunnudagsmorgninum, hættu að bíða eftir nýja bílnum, eftir að þú sért búin að borga upp bílinn eða húsið, eftir vorinu, sumrinu, haustinu, vetrinum. Hættu að bíða eftir að þúfáir þér drykk og svo að bíða eftir að það renni af þér. Hættu að bíða eftir að þú deyir....
Hættu að bíða eftir að ákveða að, Það er enginn tími betri en einmitt núna, að vera hamingjusamur...
Hamingjan er ekki áfangastaður, heldur ferðalag.Í dag er tími til að: vinna eins og þú þurfir ekki á peningum að halda,elska eins og enginn hafi nokkurn tíma sært þig,
dansa eins og enginn sé að horfa.....