Orðin fullorðin!

Nú telst ég örugglega orðin fullorðin, fjörutíu ára!!! Mér líður samt ekkert öðru vísi í dag heldur en síðastliðin þriðjudag þegar ég var ennþá bara 39 ára! Lífið er á fullri ferð og ég með, kannski er mitt skeið á þessari jörð nú hálfnað svona ef að maður miðar við að ná því að verða áttræður, skrýtið, en kannski verð ég enn eldri og jafnvel kannski aldrei áttræð hver veit!
Ég var einmitt að heyra af konu sem er orðin 120 ára og fór allt í einu að hugsa um það hvort að hún hefði kannski fengið svo 40 ára tremma eins og margir fá (tek það fram, ekki ég!) en svo kemur í ljós að hún átti svona heilmikið eftir, allavega 80 ár, haha!
Það skiptir máli að reyna alltaf að njóta lífsins og að horfa á skemmtilegu hliðarnar á lífinu en ekki þær leiðinlegu því eins og segir einhverstaðar á maður að skrá það leiðinlega og slæma í sand en það skemmtilega og góða í stein því það sem ritað er í stein endist en það sem í sandinn er skrifað hverfur fljótt og gleymist.
Það er undarlegt að fólk skuli eyða tímanum í að velta sér sífellt upp úr gömlum sorgum og einhverju liðnu því það er svo tilgangslaus tíma- og kraftaeyðsla og engum til góðs og breytir engu! Það á nefnilega ekki að eyða nýjum tárum á gamlar sorgir, en nú er ég reyndar komin dálítið út fyrir efnið, sem er mér líkt, semsagt að vera fljót að vaða úr einu umræðuefni í annað ef einhver kannast við það!
Á þessum tímamótum ætla ég að horfa glöð um öxl og þakka fyrir gott líf, yndislegu
fjölskylduna mína og alla mína vini.
Fyrir allt það góða sem þau hafa gefið mér alla tíð og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag.
Knús og kram til ykkar allra.
Arna
