HÆÆÆÆÆÆ

Loksins kemur maður sér að því að skrifa, hef verið alveg ferlega löt að gera það hér kannski af því að ég skrifa nóg annarsstaðar og er alveg að fá nóg af því að sitja við tölvuna!. En nóg um það.o) Héðan af þessum bæ er tíðindalítið og allir að stússa í sínu. Ég er í verknáminu og það er mjög lærdómsríkt að vera á fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.
Eins og allir vita er öskudagurinn í dag og Baldur stóð öskudagsvaktina í dag, fékk bara frí af því ég er í verknáminu. Stjórnaði öskudagsliði sem samanstóð af Júlíu Birtu, systkynum hans 5 og einum vini þeirra. Haha eflaust er þessi samsetning á öskudagsliði sjaldgæf! Elsta systkynið komið á fertugsaldurinn og yngsta 5 ára!
En hvað um það allt gekk þetta ljómandi vel:o)
Annars er það næst á dagskrá að um næstu helgi verður PARTÝ þar sem karlpeningurinn ætlar að elda góðan mat og kvenfólkið ætlar bara að njóta sín! Eða það er stefnan;o)
Maður kann ekki að skemmta sér svona lengur og maður veit varla hvað skemmtistaðir bæjarins heita lengur, svei mér þá. Maður er að kalla þá löngu úreltum nöfnum haha. Maður reynir kannski að rifja upp gamla takta um helgina! (ef maður man einhverja!)
Annars finnst mér ég stundum svo ferlega gleymin, vonandi er maður ekki með byrjandi elliglöp ekki orðin fertug! Það er heldur snemmt ef maður hugsar til þess að það er ekki óvenjulegt lengur að verða níræður! Þetta hefur svo sem verið öðruvísi hér áður fyrr þegar fólk var orðið útslitið um þrítugt af þrældómi og vosbúð og dautt oftast fyrir fimmtugt.
Jæja nóg þvaður í bili ;o)
Mbk Arna
