föstudagur, september 29, 2006

Lífið.


Ég er mikið búin að hugsa um dyggðir og það sem við gerum í lífinu.
Maður er alltaf að sjá eitthvað lítið sem minnir mann þó á svo margt.
Fólk veltir sér oft upp úr gömlum mistökum sínum og því sem aðrir hafa gert manni eða maður gert á hlut annarra og ýmsu sem upp á kemur í lífinu En það að lifa lífinu er að lifa ekki í eftirsjá. Enda stoðar það lítið því að maður getur ekki breytt fortíðinni en bara haft áhrif á framtíðina svo best er að reyna að stefna í þá átt sem hamingjuríkust virðist. Vera duglegur að sjá það góða í öllum og óskað öðrum hamingju og gleði. Það er nefnilega þannig að bestu gjafirnar eru þær sem kosta ekkert eins og að vera til staðar fyrir aðra, vinsemd, virðing, ást og hlýja.
Ef maður vill öðlast gleði þá gleður maður aðra, ef maður vill vera elskaður þá elskar maður aðra, ef maður vill öðlast virðingu og athygli sýnir maður öðrum virðingu og athygli. Ef maður gefur af sjálfum sér fær maður það margfallt til baka.
Það er gott að hafa þetta að leiðarljósi í lífsins ólgusjó þar sem skiptast á skin og skúrir.
Bless í bili Arna

fimmtudagur, september 21, 2006

Haha

mánudagur, september 18, 2006

Tóm!



Jeminn eini ég sit hérna við tölvuna og á að vera vinna verkefni en það gengur eitthvað erfiðlega að koma einhverju niður á blað! Var að vinna alla helgina og svo skreið karlinn heim kl hálf sex í morgun( var að koma frá Norge) og ég sofnaði ekki eftir það og er bara eitthvað svo úfin eins og meðfylgjandi mynd sýnir,o).
Ég er að spá í hvernið ég eigi að koma mér af stað í skriftirnar, haldið þið að það gangi betur ef ég skríð í nammipokann sem hann kom með úr fríhöfninni? Nei ætli ég drekki ekki bara meira kaffi og vona að ritstíflan losni og ég greiði mér kannski líka;o)
Kveðja Arna

þriðjudagur, september 12, 2006

Einn góður,o)

mánudagur, september 11, 2006

Uppáhaldslag.



Þetta lag með Louis Armstrong vekur alltaf upp æskuminningar úr Gránufélagsgötunni og er eitt af mínum uppáhöldum.

What a wonderful world.

I see trees of green, red roses too
I see them bloom, for me and you
And I think to myself, what a wonderful world

I see skies of blue, and clouds of white
The bright blessed day, dark sacred night
And I think to myself, what a wonderful world

The colors of the rainbow, so pretty in the sky
Are also on the faces, of people going by
I see friends shaking hands, sayin' "how do you do?"
They're really sayin' "I love you"

I hear babies cryin', I watch them grow
They'll learn much more, than I'll ever know
And I think to myself, what a wonderful world

Yes I think to myself, what a wonderful world
Oh yeah

Kveðja Arna

sunnudagur, september 10, 2006

Nýjustu tíðindi úr Skessugilinu!











Jæja það er langt síðan að við skrifuðum síðast en ýmislegt er að frétta. Við fórum í yndislega ferð til Mallorca ég, Baldur óg Júlía og höfðum það alveg frábært þar í yndislegu veðri. Strákarnir voru að heima og gættu dýranna og söfnuðu sér aurum. Fannst ekkert slæmt að búa sjálfir í hálfan mánuð;o)
Svo þegar við komum heim var farið að undirbúa flutning frumburðarins til Reykjavíkur en þangað flutti hann um síðustu mánaðarmót og býr þar í kompaníi með þrem vinum sínum og ætlar að taka sér námshlé og vinna á leikskóla í vetur.
Það var lítið mömmuhjartað þegar hann fór og táraflóð.o(
En svona er þetta bara, honum líður vel þarna og það er fyrir öllu.
Ég fór að vísu í námslotu viku seinna og gat því farið í rannsóknarferð í nýju híbýlin hans og vinnuna:o)Þarna búa þeir semsagt fjórir saman og ofsa gaman. Það sem kostulegast var að allir eru þeir að norðan og allir voru þeir útbúnir með klósettbusta heiman frá sér. Það er greinilegt að allar mútturnar hafa ætlað að sjá til þess að þeir þrifu hjá sér klósettið í höfuðborginni!
Annars var námslotan hefðbundin og hann verður greinilega ansi "fjörugur" þessi síðasti vetur í skólanum. Við mæðginin fórum í IKEAferð þar sem við tíndum ýmislegt í búið fyrir hann.
Nú er semsagt allt "vetrarstarfið" að komast á stað svo sem vinnur, ræktin og skólar fjölskyldunnar. Karlinn er svo að fara til Noregs í vikunni og Viljar er farinn að teikna nakin módel í skólanum!!!!
Ég læt fylgja hérna nokkrar myndir frá Mallorca!
Jæja nóg í bili héðan úr Skessó.
Kveðja Arna