þriðjudagur, apríl 11, 2006

Ok

Jæja loksins drífur maður sig í skriferíið aftur,við höfum verið voða léleg í þessu!
Langþráð páskafrí framundan og hittingur með gellunum framundan annað kvöld, það verður eitthvað kjaftað þar hugsa ég!
Ég er að æfa Orminn núna og fleiri spor á stofugólfinu með grifflur, legghlífar og vængi í hári mér svona til að hita mig upp fyrir annað kvöld hí hí.
Ég mæli með því að Alda setji hátalarana út í glugga svona til að skapa stemmningu í garðinum eins og forðum daga á eyrinni, taki til sín sem eiga!
Annars ætlar familían bara að hafa það gott, njóta þess að vera í fríi og borða góðan mat.0)Svo er það leikhúsið á laugardag og ég nota tækifærið að minna þá á sem eiga pantaða miða í nafni Baldurs að ganga frá þeim eða afpanta það er biðlisti veit ég!
Annars er allt gott að frétta af okkur og allir hressir.Vonandi segið þið það sama;0)


SMÁ UM VINÁTTUNA.

Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálar þinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur í leit að friði. Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú honum óttalaust eða ert honum samþykkur af heilum hug. Og þegar hann þegir skiljið þið hvor annan.

Því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis. Þú skalt ekki hryggjast þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni.

Og láttu vináttuna ekki eiga sér neinn tilgang annan en að auðga anda þinn, því að sú vinátta, sem leitar einhvers annars en síns eigin leyndardóms, er ekki vinátta, heldur net, sem kastað er í vatn og veiddir í tómir undirmálsfiskar.


Og gefðu vini þínum það, sem þú átt best. Ef hann verður að þekkja fátækt þína, lát hann einnig kynnast auðlegð þinni. Hví skyldir þú leita vinar þíns aðeins til að drepa tímann? Leitaðu hans með áhugamál þín. Því að það er hans að uppfylla þörf þína, ekki tómleika þinn. Og vertu glaður með vini þínum og njóttu með honum lífsins. Því að í dögg lítilla hluta finnur sálin morgun sinn og endurnærist.

Many people will walk in
and out of your life,
but only true friends will leave
footprints in your heart.

BLESS Í BILI