þriðjudagur, júlí 24, 2007

Komin heim:o)


Vonandi njótið þið sólarinnar og sumarsins eins og við:0)
Jæja þá erum við komin heim á klakann eftir góða ferð til Spáníá þar sem var veeeel heitt. Höfðum það gott þar í mat og letilífi. Vorum á góðu hóteli þar sem var frábær aðstaða bæði fyrir börn og fullorðna. Ég er alveg til í að fara á þennan stað aftur;o)
Vinnan beið um leið og heim var komið en nú eru bara nokkrir dagar þangað til ég hætti í Skammtíma, ég kvíði því en ég verð bara dugleg að heimsækja fólkið mitt þar áfram þó að ég hætti, það er á hreinu enda á ég þar marga góða sem standa hjarta mínu nærri.
-Það er líka spennandi tilhugsun að takast á við ný verkefni á nýjum stað;o)og kynnast nýju fólki.
Eitt tekur við að öðru og lífið er ævintýr er það ekki?


Kveðja frá Skessugilsliðinu

sunnudagur, júlí 01, 2007

Haha Er þetta framtíðin?