þriðjudagur, október 03, 2006

Samskipti & húmor,o)


Sæl veriði.
Ég sit ég reitt og tætt í sauðalitunum( er ekki búin að setja upp andlitið:) yfir mínum skólabókum eins og oft áður. Efnið er um samskipti manna á milli. Ég hef því lagt höfuðið í bleyti og spekúlerað mikið og margt. Maður leitar í góð samskipti og forðast það sem maður heldur að geti orðið leiðinleg samskipti.En stundum þegar maður hefur búist við leiðindum fær maður óvænt eitthvað skemmtilegt!
Að hafa húmor er eitt af því mikilvægasta og þá ekki síst að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Stundum er hægt að hlægja sig máttlausan af einhverju eftir á þó að á þeirri stundu sem að það skeði hafi manni þótt það allt annað en fyndið.Eins og þegar ég á góðum "pæjudegi" fleytti kellingar eftir gólfinu í Hagkaup og hálfrotaðist undir fatahengi.Á þeirri stundu þótti mér það bara alls ekki fyndið og hló ekki fyrr en ég sagði einhverjum frá því sem sprakk úr hlátri og sagði" ekkert smá mislukkuð gella" haha.Þá fór ég að sjá þetta fyrir mér!
Það er svo gott að hlægja og þá manni líður svo vel. Stundum hlær maður svo mikið að manni verður illt í maganum en sálin gleðst. Það að geta séð spaugilegar hliðar á hversdagsleikanum er mikils virði. Þess vegna segi ég hlægjum og hlægjum sem mest!
Því að hláturinn lengir lífið það er ég sannfærð um. Það er hægt að hlægja sig frá ótrúlegustu vanlíðan í góðum hóp. Að geta hlegið með einhverjum segir margt & víða leynast góðir húmorgullmolar þó að maður þurfi stundum að leita,O)
Fólk kemur sífellt á óvart!
Bless í bili Arna

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

prufa

03 október, 2006 16:24  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ arna mín?já það er sko mikið til í þessu sem þú skrifar ekkert í lífinnu er eins nauðsynlegt og hlátur í góðrar vinarhópi...
þú ert með þeim fyndnustu manneskjum sem ég þekki alltaf gaman að vera í krinkum þig og hjæja dátt með þér.Þú varst að spurja mig hvennar stelpurnar væru að spá að koma norður var það helgin 12-13 okt eða helginn á eftir veit svo ekki meir........og að sjálfsögðu kemur þú líka. kveðja þín vinkona alltaf Klara.

03 október, 2006 16:27  

Skrifa ummæli

<< Home