þriðjudagur, október 10, 2006

Snjór!


Það er kalt og farið að snjóa, ég mátti vita það hælarnir alveg skrælnaðir!
Ég fæ ekki gikt þegar það verður kalt heldur þurrkast hælarnir upp og er ekki sjón að sjá þá, skelfilegir. Nú byrjar smurningin sem stendur yfir í allan vetur og og best að fara í lobbaleista. Það þýðir ekkert annað en vera vel smurður því þeir eru stórhættulegt vopn sérstaklega ef þeir springa. Þá fer maður að ganga einkennilega svo að maður geri ekki gat á skóna.Það er kostur að ég gæti eflaust varið mig með hælunum ef það yrði ráðist á mig! Maður verður alltaf að sjá björtu hliðarnar á öllu og þessu líka þegar maður skakklappast um á sprungnum hælum í blóði drifnum sokkum, nei ýki aðeins. En ef mann vantar upptakara þá er möguleiki að nota hælana.
Neyðin kennir naktri konu að spinna gott fólk. Verið glöð og góð við hvort annað.

Annars er það í fréttum að helgin var góð og Hákon kom hinn hressasti frá Reykjavíkinni og allt í blóma. Borðuðum góðan mat og létum okkur líða velfamilíunni.
Allir hressir utan við hósta. Baldur er að vísu að missa sig í tilhlökkun enda draumaferðin hans til Liverpool að bresta á. Hann ræður sér hreinlega ekki fyrir kæti.
Jæja bless í bili
Arna jákvæða;o)

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sámmála þesu með fjándas hælanna?
hefuru prufað bera á þig júgusmysl og sofa svo í sokkum???'Það virkar bara vel skal ég segja þér,tala ekki um þegar ég sef líka með hvíta hanska á höndunum vegna exems og í sokkum um vegna hælaþurrks ot tala ekki um þegar maður setur svo djúpnæringu í hárið og sefur með slæðu,mjöggg smart... karlinn sefur nú þá bara í sófanum.

11 október, 2006 14:55  

Skrifa ummæli

<< Home