föstudagur, október 06, 2006

Af því að þú ert eins og þú ert!


Góð lesning..... Þetta sendi elskuleg vinkona mín hún Bettý mér:o)

Gömul kínversk kona átti tvo leirpotta sem hún hengdi á sitthvorn endan
á langri stöng sem hún bar á öxlum sínum. Á hverjum degi sótti hún vatn
Langa leið í uppsprettu fjarri heimilinu. Annar potturinn var sprunginn eftir
endilöngu og var því aðeins hálffullur þegar heim kom. Hinn potturinn
var fullkominn og skilaði sér alltaf fullur af vatni eftir þessa löngu leið heim
að húsinu. Svona gekk þetta í tvo ár, daglega gekk gamla konan með
pottana að uppsprettunni og daglega kom hún heim með aðeins einn og hálfan pottaf vatni.
Auðvitað var fullkomni potturinn ánægður með sína frammistöðu en sprungni
potturinn skammaðist sín og leið mjög illa þar sem frammistaða hans var
aðeins til hálfs við það sem hann var skapaður til að gera. Eftir tveggja
ára vinnu talaði hann til konunnar við uppsprettuna. "Ég skammast mín
fyrir frammistöðu mína, vegna sprungunnar á hlið minni lekur helmingurinn af vatninu burt á leiðinni heim. Þú ættir að henda mér og fá þér nýjan
pott. En gamla konan brosti, "Hefur þú tekið eftir að þín hlið við götuna er
blómumskreytt á meðan engin blóm vaxa hinum megin götunnar?
Það er vegna þess að ég hef alltaf vitað af þessum galla þínum og þess
Vegna sáði ég fræum á þinni hlið götunnar og á hverjum degi þegar við göngum
heim vökvar þú blómin mín. Ég hef um árabil getað týnt þessi fallegu blóm og
skreytt heimili mitt með þeim. Af því að þú ert eins og þú ert þá hef
ég fengið að njóta fegurðar blómanna.
Það er eins með okkur manneskjurnar, enginn er gallalaus. En það eru
gallarnir og sprungurnar sem gera hvern og einn einstakann. Þess vegna
er svo spennandi að kynnast og eyða ævinni saman. Við þurfum bara að læra
að taka hverri manneskju eins og hún er og sjá jákvæðu hliðarnar hjá hvort öðru.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

yndisleg saga takk fyrir mig!
knús
Beta

11 október, 2006 00:37  

Skrifa ummæli

<< Home