Lífið.

Ég er mikið búin að hugsa um dyggðir og það sem við gerum í lífinu.
Maður er alltaf að sjá eitthvað lítið sem minnir mann þó á svo margt.
Fólk veltir sér oft upp úr gömlum mistökum sínum og því sem aðrir hafa gert manni eða maður gert á hlut annarra og ýmsu sem upp á kemur í lífinu En það að lifa lífinu er að lifa ekki í eftirsjá. Enda stoðar það lítið því að maður getur ekki breytt fortíðinni en bara haft áhrif á framtíðina svo best er að reyna að stefna í þá átt sem hamingjuríkust virðist. Vera duglegur að sjá það góða í öllum og óskað öðrum hamingju og gleði. Það er nefnilega þannig að bestu gjafirnar eru þær sem kosta ekkert eins og að vera til staðar fyrir aðra, vinsemd, virðing, ást og hlýja.
Ef maður vill öðlast gleði þá gleður maður aðra, ef maður vill vera elskaður þá elskar maður aðra, ef maður vill öðlast virðingu og athygli sýnir maður öðrum virðingu og athygli. Ef maður gefur af sjálfum sér fær maður það margfallt til baka.
Það er gott að hafa þetta að leiðarljósi í lífsins ólgusjó þar sem skiptast á skin og skúrir.
Bless í bili Arna

1 Comments:
þú ert nátllega algjör snilldar penni, það er hrien unun að lesa það sem þú skrifar!
Hlltu áfram að vera svona dugleg!
kve.Beta lata
Skrifa ummæli
<< Home