sunnudagur, september 10, 2006

Nýjustu tíðindi úr Skessugilinu!











Jæja það er langt síðan að við skrifuðum síðast en ýmislegt er að frétta. Við fórum í yndislega ferð til Mallorca ég, Baldur óg Júlía og höfðum það alveg frábært þar í yndislegu veðri. Strákarnir voru að heima og gættu dýranna og söfnuðu sér aurum. Fannst ekkert slæmt að búa sjálfir í hálfan mánuð;o)
Svo þegar við komum heim var farið að undirbúa flutning frumburðarins til Reykjavíkur en þangað flutti hann um síðustu mánaðarmót og býr þar í kompaníi með þrem vinum sínum og ætlar að taka sér námshlé og vinna á leikskóla í vetur.
Það var lítið mömmuhjartað þegar hann fór og táraflóð.o(
En svona er þetta bara, honum líður vel þarna og það er fyrir öllu.
Ég fór að vísu í námslotu viku seinna og gat því farið í rannsóknarferð í nýju híbýlin hans og vinnuna:o)Þarna búa þeir semsagt fjórir saman og ofsa gaman. Það sem kostulegast var að allir eru þeir að norðan og allir voru þeir útbúnir með klósettbusta heiman frá sér. Það er greinilegt að allar mútturnar hafa ætlað að sjá til þess að þeir þrifu hjá sér klósettið í höfuðborginni!
Annars var námslotan hefðbundin og hann verður greinilega ansi "fjörugur" þessi síðasti vetur í skólanum. Við mæðginin fórum í IKEAferð þar sem við tíndum ýmislegt í búið fyrir hann.
Nú er semsagt allt "vetrarstarfið" að komast á stað svo sem vinnur, ræktin og skólar fjölskyldunnar. Karlinn er svo að fara til Noregs í vikunni og Viljar er farinn að teikna nakin módel í skólanum!!!!
Ég læt fylgja hérna nokkrar myndir frá Mallorca!
Jæja nóg í bili héðan úr Skessó.
Kveðja Arna

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home