Stúdent!
Sætasti stúdentinn og stolta mamman;o)!Jæja sumarið hingað til hefur verið fjörugt. Útskriftin hjá Hákoni mínum gekk vel,veisla hérna heima á eftir og svo var farið út að borða í Höllinni, alveg frábær dagur í alla staði. Hákon er líka orðinn tvítugur og búin að fá vinnu í höfuðborginni næsta haust og Viljar orðinn 17 ára. Mér finnst afskaplega skrýtið að eitt að börnunum mínum sé að flytja að heiman og kvíði því mjög en þetta er gangur lífsins og ef börnin manns eru ánægð þá er maður sjálfur ánægður.
Jeminn hvað tíminn flýgur og hvað ég er stolt af ungunum mínum þrem;o)og þrái heitast af öllu að þau séu hamingjusöm.
Annars eru allir á kafi í vinnu á heimilinu en það styttist í sumarfrí og Mallorcaferð jíbbí!
Ég, Júlía og mútta skelltum okkur svo vestur í Ólafsvík en hún Debba bróðurdóttir mín var að gifta sig með pompi og prakt. Athöfin var afskaplega fjörug og veislan líka, fullt af skemmtiatriðum og smáfólkið í famílíunni fór á kostum í ræðuhöldum, söng og spaugi.
Jæja ég kveð í bili. Arna

3 Comments:
Here are some links that I believe will be interested
Really amazing! Useful information. All the best.
»
I'm impressed with your site, very nice graphics!
»
Skrifa ummæli
<< Home