fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Sálarfóður!

LOFAÐU SJÁLFUM ÞÉR

Að láta alla vini þína finna að þeir séu mikils virði.

Að horfa á bjartari hliðar lífsins og að láta óskir þínar rætast.

Að hugsa aðeins um það besta, vinna að því besta og búast við hinu besta.

Að vera jafn áhugasamur um velgengni annara, eins og þína eigin.

Að gleyma mistökum fortíðarinnar og stefna að betri árangri í framtíðinni.

Að vera alltaf glaðlegur og eiga bros handa öllum þeim sem þú mætir.

Að gefa þér svo mikinn tíma til að þroska sjálfan þig að þú hafir engan tíma til að gagnrýna aðra.

Að vera of stór fyrir áhyggjur, of öruggur fyrir reiði, of sterkur fyrir ótta og of hamingjusamur til að leyfa vandamálum að festa rætur.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já arna min ég reyni að hafa þetta að leiðarljósi á hverjum einast degi. enda er ég í allveg svakalegu stuði þessa dagana. hí hí hí

kv bettý

03 febrúar, 2006 11:48  

Skrifa ummæli

<< Home