mánudagur, febrúar 13, 2006

K dagurinn

Jæja þá er hann runninn upp K dagurinn í mínu lífi, semsagt í dag næ ég hátoppi kynþokkans.;0) eða svo er sagt. Ekki að ég finni mikinn mun á mér síðan í gær.
Aldur er afstætt hugtak finnst mér, ég held að aldur skipti engu máli, bara að vera sáttur við sjálfan sig, hugsa vel um sjálfan sig og bera virðingu fyrir sjálfum sér.
Það fer alveg ósegjanlega í taugarnar á mér þessi æskudýrkun í umhverfinu, er ég ekki alveg sama manneskjan og fyrir 20 árum? Það vilja allir verða gamlir en enginn vera það!
Það er eins og manni sé vorkennt að eldast! Aumingja þú að vera orðin 38 ,0(ég bara skil ekki svona. Ég er sátt er það ekki málið, af hverju ætti ég ekki að vera það? Ég er glöð yfir því að fá að sjá börnin mín vaxa úr grasi því það fá nefnilega ekki allir tækifæri til þess! Það eru forréttindi að vera heilbrigður gleymum því ekki!.
Það er nefnilega umhverfið og menningin sem gerir fólk oft óánægt því það er eins og það eigi að vera ósátt af því það er ekki svona og hinsveginn. Leiðinda aðfinnslur og skot geta gert ánægða mannesku óánægða og hver græðir á því? Enginn held ég! Ef aðrir eru ekki sáttir við mann eins og maður er þá er ekkert með þannig félagsskap að gera er það? Þetta er mín skoðun og ef einhver vorkennir manni svona mikið af því að maður eldist þá má hinn sami bara halda því fyrir sig,0) Það vantar bara að Baldur fái sent samúðarskeyti því kerlingin sé bara komin á seinasta snúning haha.,
Jæja nóg í bili um þetta!
Bestu kveðjur Arna

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já málið er að það er æðislega gaman að vera orðinn svona gamall. persónulega lýður mér miklu betur en þegar ég var t.d. 28 ára. bjarta framtíð.

bettý

14 febrúar, 2006 09:50  
Anonymous Nafnlaus said...

elsku dúlla til lukku með afmælið!!!
kossar og knús frá Betu "litlu"

14 febrúar, 2006 16:33  
Anonymous Nafnlaus said...

Nice idea with this site its better than most of the rubbish I come across.
»

22 júlí, 2006 12:40  

Skrifa ummæli

<< Home