Hæjó
Jæja nú er ég húsmóðirin á heimilinu að taka til við bloggeríið, hversu mikið það verður veit nú enginn.
Baldur á eftir að hlæja eitthvað af því hvernig ég titla mig svo mikið er víst:)
Nú er námið mitt að hefjast á ný og ég bíð enn þá eftir því að fá að vita hvert ég fer í verknám!
Það er ekki um auðugan garð að gresja.( Þetta reddast þó örugglega á endanum! Ég er þó að vonast til að komast í verknám í t.d.VMA því þar er EINN þroskaþjálfi sem vonandi tekur nema.....
Hákon er í sínum prófum núna, situr sveittur yfir skólabókunum, Viljar komin á Listnámsbraut í VMA, skipti af því að fann sig ekki alveg í matreiðslunni! og Júlía fékk þennan fína vitnisburð í gær frá kennaranum sínum svo hér eru allir í góðum málum;0)
Jæja nóg komið af pruferíi og ég ætla að reyna að vera dugleg að skrifa:)
Kveðja Arna

2 Comments:
Blessuð Arna og takk fyrir síðast.
Ákvað nú að kvitta fyrir mig, eins vel upp alin eins og ég er:)
Hafðu það sem best og vonandi að þú fáir vettvangsstað sem fyrst...nógu er þetta nú stressandi:)!!!
Kveðja frá Selfossinu góða
Fríður
Hæ sæta
Til hamingju með að vera byrjuð á þessu. Og innilega til hamingju með Júlíu.
Svo er það partýið okkar, við stelpurnar auðvitað settar í það hlutverk að koma liðinu saman, við verðum að vera í samandi hvað það varðar :)
Kveðja Sóley ofurskutla ;)
Skrifa ummæli
<< Home