þriðjudagur, janúar 16, 2007

2007!


Jæja með nýju ári koma ný verkefni og nýjar áskoranir sem er bara gaman. Skólinn að byrja aftur hjá mér og nóg af verkefnum sem fylgja honum! Næsta vika fer í lotu í Reykjavíkinni en það er fyrsta ferðin af fimm;o) Stanslaust stuð og stíf dagskrá í þeirri ferð. Svo byrjar vettvangsnámið sem er í febrúar og mars og er mjög spennandi að sjá hvernig það verður. Það verður semsagt nóg að gera hjá öllum næstu mánuði hér á bæ. Þetta er þó lokaspretturinn í skólanum hjá mér og það verður skrýtið þegar hann er búinn. Hann hefur skipað svo stórann sess í lífinu síðustu fjögur árin.

Annars hefur familían það bara gott og allir hressir.
Helstu fréttir þessa dagana eru að það verða allir heima um helgina því að Hákon ætlar að koma norður og fara svo suður aftur með mér á mánudag. Hann unir sér ágætlega í Reykjavíkinni en ætlar þó að koma heim í vor;o) Viljar er farinn að vinna á Dominos með skólanum og líkar bara vel;o). Júlía steig í fyrsta sinn á skíðin sín (sem að hún fékk í jólagjöf ) um helgina og skemmti sér vel.
Við skötuhjúin ætlum svo að skella okkur á þorrablót um helgina og ég hlakka svo til að fá rófustöppu;o) hjá Lionsmönnum.
Við ákváðum svo um daginn að nú í sumar ætlum við að sóla okkur á Costa del sol( ekki slæm tilhugsun það) með tengdó og co og það verður eflaust ljúft eftir annasaman vetur. Mútta mín ætlar líka að skella sér með okkur þangað þetta sumarið sem er frábært;o)
Jæja þetta eru helstu tíðindi af þessum bæ í byrjun árs.
Kveðja Arna



1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ frábært hjá ykkur að skella ykkur út og mútta þín með.

bloggaðu svo um spaugilega hluti sem gerast í lotunni. þú ert klár í að sjá spaugilegar hliðar á öllu.

kv bettý

22 janúar, 2007 10:24  

Skrifa ummæli

<< Home