sunnudagur, nóvember 19, 2006

Hvað gengur fólki til?


Það er eitt sem ég skil ekki og það er hroki. Það að vera með óþarfa skot og afskiptasemi. Ég lærði það heima að svona væri til skammar og væri bara illa gert. Fólk getur haft sínar skoðanir á öðrum en getur bara haldið því fyrir sig ef það snertir ekki þeirra líf. Fólk sem er mikið fyrir að senda óþarfa skot og aðfinnslur á fólk og gjörðir þess ætti að íhuga það hvað það hefur fyrir t.d. börnum sínum með þessu og líta í eigin barm. Ég hef haldið mig við það að reyna að leiða svona hjá mér og hugsa bara að viðkomandi hljóti að vera eitthvað óænægður með sjálfan sig þegar hann hefur þörf fyrir að haga sér svona.
Virðing fyrir öðrum er mikilvæg dyggð en maður öðlast aðeins virðingu með því að virða aðra og líf þeirra og tilfinningar. Maður öðlast ekki virðingu með því að upphefja sjálfan sig á kosnað annarra. Ég er stundum alveg gáttuð á hvernig fólk getur hagað sér og látið út úr sér. Sá vægir sem vitið hefur meira er gott að hafa í huga þegar maður fær á sig svona skot.
Einnig er mjög hvimleitt þegar fólk þykist alltaf vita best og mest, ég held að oft sé það mikil minnimáttarkennd sem þar er undirliggjandi en það er mín skoðun.
Það er einu sinni þannig að enginn veit alltaf best!
Ég hef lagt mikið upp úr því að kenna börnum mínum það að virða mannhelgi hvers og eins og koma vel fram við annað fólk því að mikilvægasta þegar upp er staðið er að vera metinn sem góð manneskja sem öðrum líður vel að hafa í návist sinni.
Arna.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl og blessuð, ég er nú eiginlega sammála þér. það fer allveg í mínar fínustu t.d þegar fólk upphefur sjálft sig á kostnað annarra. Fyrir utan það að flest fólk fær aftur til baka hvernig það hefur hagað sér við aðra.

kv Bettý

20 nóvember, 2006 10:21  

Skrifa ummæli

<< Home