laugardagur, ágúst 30, 2008

Mömmuhjartað talar við börnin sín


Minningar-Með skólatösku á baki, trítlandi í skólann, mamma fær koss, "bless mamma"
Mamma hrædd í hjartanu sínu um að eitthvað komi fyrir.
Veröldin bíður eftir ykkur, stór með mörgum hættum en einnig miklum möguleikum.
Sjálfstæðið eykst með hverjum degi.
Ég vildi að ég gæti gætt ykkar alltaf!
Hlátur ykkar og gleði er mér allt
Börnin mín.

Tíminn líður allt of hratt og allt í einu eruð þið öll orðin svo stór
Allar minningarnar um litlar hlýjar hendur um mömmuháls og "ég elska þig mamma "
Nú eru hendurnar stærri en orðin þau sömu og mömmuhjartað gleðst alltaf jafnmikið.

Ég vildi að ég vissi alltaf hvað þið hugsið og ég gæti læknað hverja sorg
Ég vildi að ég gæti veitt ykkur allt en ég geri eins og ég get.
Ég vil að þið séuð sjálfstæð en því fylgir samt söknuður eftir liðnum stundum.
Sektarkennd yfir að hafa ekki getað gert allt sem okkur langaði meðan þið voruð minni, sumt gátum við gert en annað ekki eins og gengur því að veröldin og lífið er óútreiknanlegt og maður gerir það besta úr því sem það bíður manni.
Það hefur maður í huga og ég hlakka til að fylgjast með ykkur þroskast enn frekar og mótast, skapa ykkur ykkar eigið líf og áherslur í því, styðja ykkur með hug og hjarta hvert sem þið farið.
Lifið bara lífinu glöð og njótið þess.
Elska ykkur af öllu hjarta
Mamma

þriðjudagur, júní 10, 2008

Brostu!



Knús og kram frá mér
Arna

sunnudagur, apríl 27, 2008

Afkvæmin :oD , mömmupistill og nokkrar myndir úr safninu







































































           






















Ég sit hér á sunnudagsmorgni og horfi á dóttur mín sitja með ljósgyllta hárið sitt horfandi á sjónvarpið, hún er að ferðast um heima ævintýra og prinsessa með sjónvarpinu og sér sig í þeirra sporum. Það er gaman þegar hún skottast og snýst í frumsömdum danssporum um gólfin, syngjandi og njótandi þess að vera til. Manni hlýnar um hjartarætur þegar börnin manns eru svo frjálsleg og njóta þess einfaldlega að vera börn og eru óhrædd við það að skapa sér heim í huganum þar sem þau geta gert hvað sem er. 
Þegar bræður hennar voru pollar voru það annarskonar hlutverk sem þeir völdu sér í sínum draumaheimum. Þeir svifu um með sverð, grímur og skikkjur, léku Batman, Turtles og fleiri góða, undu sér tímunum saman í "kalló" og nutu þess að spinna upp ævintýri eftir því hvernig lá á þeim. Alltaf að bauka eitthvað með vinina kringum sig og allt í fjöri. 
Ég sé þá líka fyrir mér, annar með ljósan koll og hinn með húmdökka hárið sitt brasandi við að berjast  með legóköllunum sínum í kastala með tilheyrandi leikhljóðum. Hjá dömunni eru leikhljóðin líka til staðar en eru bara önnur:oD
Allar svona minningar sem eru ljóslifandi í huga manns hlýja manni um hjartarætur og að horfa á börnin sín glöð og örugg fyllir hjarta manns hamingju. 
Það er eins og þegar maður horfir á börnin sín sofa, ekkert er eins róandi og friðsælt.
Mér finnst ég alveg afskaplega rík kona og er svo þakklát fyrir það að fá að vera mamma barnanna minna því ekkert í heiminum jafnast á við það og ekkert gefur mér meiri gleði.
Mín einlægasta ósk er að lífið verði þeim ávallt gott, þau hamingjusöm og sátt við lífið og tilveruna. Ef börnin mín eru hamingjusöm þá er ég líka hamingjusöm:oD

Mömmuknús 
Arna

Efnisorð:

fimmtudagur, apríl 24, 2008

Sumarkveðja!









Jæja sumarið er að koma með grænu grasi, sumarfríi og vonandi mikilli  sól:oD
Það léttist nú alltaf á manni brúnin þegar vorið er komið, það er auðveldara að vakna á morgnanna og maður fer einhvernveginn að ókyrrast. 
Notarlegt að sjá þvott á öllum snúrum í sólskininu, allir að taka til og snurfusa, börn og fullorðnir verða sýnilegri í bænum og allt einhvernveginn lifnar við og þið vonandi líka!

Ég óska ykkur með þessum orðum öllum gleðilegs sumars og þakka ykkur fyrir veturinn.
Sólskinsknús 
Arna


laugardagur, apríl 05, 2008

Tvö yndisleg gullkorn!



Mörgum sinnum á dag minni ég sjálfa mig á 
að mitt innra og ytra líf er er háð 
starfi annarra, lifandi og látinna, og ég mun reyna að fremsta megni 
að gefa í sama mæli og ég hef þegið.

Þegar við lítum yfir lífsins veg,
minnumst við hinna gáfuðu,
hugvitsömu og snjöllu- en fyrst og 
fremst minnumst við hinna góðu.

Knús til ykkar
 Arna

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Eitt uppáhald!



Þetta er eitt af mínum uppáhaldslögum eftir Megas


TVÆR STJÖRNUR

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hver hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.

Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn,
svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn.
Í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð
og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð.

Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin
Því ég sé það fyrst á rykinu, hve langur tími er liðin.
Og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli.
Því að nóttin mín er dimm og ein og dagurinn á báli.

Já, og andlitið þitt málað. Hve ég man það alltaf skýrt,
auglínur og bleikar varir, brosið svo hýrt.
Jú ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best,
En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.

Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá.

Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund.

Arna

miðvikudagur, apríl 02, 2008

Gamlar minningar!



Eitt gamalt sem vekur upp minningar.

Kveðja Arna

sunnudagur, mars 30, 2008

Fallegt!



Frá mér til þín

May you always be blessed
with walls for the wind,
a roof for the rain,
a warm cup og tea by the fire, 
laughter to cheer you,
those you love near you,
and all that your heart may desire.

Knús Arna