mánudagur, desember 18, 2006

Jólin nálgast


Jæja nú fara jólin að nálgast. Það er margt sem leitar á hugann á þessum tíma. Maður hugsar afturað hugsa um það í tímann til jólanna þegar maður var lítill. Tilhlökkunin var svo mikil að maður gat varla sofið aðfaranótt aðfangadags. Allt var svo hreint og fínt og hátíðlegt. Ég man líka svo vel eftir kvöldunum fyrir jól þegar maður heyrði mömmu og pabba rísla og stússast fram eftir öllu. Mamma að baka 15 kökusortir og svo fram eftir götunum. Þetta er minning mín um æskujólin og hversu vel manni leið. Það var alltaf farið í kirkju klukkan sex og það var erfiður klukkutími fyrir mig og langur;o) Ég man eftir mér skoðandi lyklakippu sem amma átti í messu til að reyna að hafa ofan fyrir mér. Svo fór ég að lesa og læra sálmana og söng þá hástöfum með sem sló aðeins á óþolonmæði mína. Ég var alltaf eina barnið á jólunum með annars fullorðnu fólki þangað til hann frændi minn Eddíe fæddist og eru þau jól eru mér mjög minnistæð, hann hefur alltaf verið mjög virkur!
Seinna komu jól sem voru erfið eins og eftir að pabbi minn dó og söknuðurinn var sár og jólin erfið.
En lífið breytist og lífið tekur á sig nýja mynd og yndisleg urðu jólin aftur. Það er svo gaman þegar maður eignast börn og upplifir gleði þeirra og tilhlökkun. Matartímarnir þar sem fullorðna fólkið var alltof lengi að borða eru í minnum hafðir hjá Hákoni og Viljari og núna er Júlía að upplifa það sama;o) Jóladagsmorgnar þegar strákarnir voru yngri þar sem raðað var saman legói eða öðru dóti í rólegheitum á náttfötunum er notarleg minning. Nú eru það ekki lengur legókastalar heldur dúkkudútl með Júlíu ;O) en strákarnir vilja sofa út!
Eftir nokkra daga kemur hann Hákon minn heim og þá eru allir heima og jólin mega koma.
Baldur er tilbúinn með hreindýrið, svínakjötið og allar hinar kræsingarnar sem að hann hefur svo gaman af að framreiða.
Mér finnst ég svo rík og heppinn en ég veit að svo er ekki með alla. Því skulum við muna að hugsa til þeirra sem ekki geta notið jólanna og líður illa um allan heim. Muna að vera þakklát og njóta þess að vera með okkar nánustu um jólin þvíþað er dýrmætast.

Arna

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Arna og fjölskylda?Hafið það sem allra best yfir jól og hátiðarnar.Njótið að vera öll saman.Gleðileg jól dúllurnar mínar.Kveðja Klara.

20 desember, 2006 17:50  

Skrifa ummæli

<< Home