Kynslóðin okkar!

Ég fékk þetta einhverntíma sent frá einhverjum en man ekki lengur hverjum, alger snilld að lesa.En þessi grein birtist víst einhverntíma í Kópavogspóstinum og er eftir mann að nafni Gunnar Sigurjónsson.
Fólk eldra en 30 ára ætti að vera dáið!(Eða vorum við bara heppin?)
Samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5, 6, 7 og 8. áratug ekki að vera lifandi. Barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu, það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum var enginn með hjálm.
Sem börn sátum við í bilum án öryggisbelta eða púða og að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum því við vorum alltaf úti að leika. Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flösku og lifðu það af.
Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíla úr dóti og drasli og þutum á þeim niður brekkur bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum!
En eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.
Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat. Enginn hafði möguleika á að ná í okkur allan daginn.
Engir farsímar!
Við áttum ekki leikjatölvur eða tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki farsíma, ekki heimilistölvu eða spjallrásir á netinu! Við eignuðumst vini með því að fara út og finna þá!
Við duttum í skurði,skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um - nema okkur sjálfum, því þetta voru jú óhöpp.Manstu eftir óhappi? Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það!
Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum ánamaðka. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur að eilífu.
Við hjóluðum og gengum hvort til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.
Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í "Fallin spýta", "Eina krónu" eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á "Löggu og bófa" Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur við stjórnuðum okkur sjálf!
Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir og þeir lentu í "tossabekk", hræðilegt En þeir lifðu af:o)
Það var farið í þrjúbíó á sunnudögum og Andrés önd var á dönsku sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í norðurlandamálunum seinna meir, það var jú sagt ýmislegt annað þar en "Gisp" og "Hva" í þeim!
Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, er gott í að leysa vandamál og bestu fjárfesta nokkru sinni.Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda.
Við áttum frelsi, sigra, ósigra og ábyrgð og lærðum að takast á við það allt saman!
Við ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar-sem eru okkur sjálfum fyrir bestu!!
Við áttum gott líf!

2 Comments:
sæl og blessuð vinkona. farðu nú að henda inn einni góðri færslu. bið ð heilsa ykkur öllum.
knús bettý
Hæ var að leita af gestabók til áð óska þér til hamingju með afmælið mín kæra. En þetta dugar alveg
til hamingju með árin 40 ótrúlega gaman að skrifa þetta :-) haltu svo áfram að vera svona glæsileg.
kveðja Alda 39. ára
Skrifa ummæli
<< Home