Æskuminningar

Hugsiði oft um æskuna?
Það geri ég, ég get fundið bragðið af blautu ullarvettlingunum þegar maður saug af þeim snjókögglana þegar maður var úti að hamast í snjónum, hvernig það var að fara með nesti í lystigarðinn á sumardegi, stelast til að hanga niðri á bryggju, kíkja undir steina í fjörunni og leita að rottum, klappa kisu sinni, hlusta á mömmu lesa og syngja, hjúfra sig hjá pabba við sjónvarpið, gera göng í stappaða fiskinn sinn með hömsunum á mánudegi í hádeginu, hamast heilu dagana í teyjó, snú snú eða sippi, hvað maður var flink að húla, að fá pylsur í matinn þegar foreldrarnir voru á leið á ball, eftir öllum nóttunum sem vinkonur gistu saman og borðuðu tonnin af ís ( stundum með gosi út á), hvernig var að hanga saman og hlæja að bókstaflega öllu, búa til ýmsar persónur í huganum, eftir fyrsta bláa hjólinu mínu, hjóltúrum, bíóferðum á sunnudögum, ótal heimagerðum leikritum og tískusýningum, að sofa í tjaldi, fá franskar einu sinni á ári á Bautanum, barnaefninu og eftirvæntingunni á aðfangadag, bílveikinni á ferðalögum á holóttum og rykugum vegum, leikjum úti á leikvelli á björtum sumarkvöldum, hvað við sungum í rólu, eftir því að maður fékk oft nýja litabók og liti þegar maður var lasin og það var lesið fyrir mann, hvað var gaman að fá að skrifa á ritvélina hans afa, hvað var gott að fá að sofa milli mömmu og pabba þegar ég var hrædd, eftir öllum Öskudögunum, eyrinni og fólkinu þar sem margt var ansi skrautlegir karakterar, fara í yfir, fá að vera lengi úti á kvöldin á björtum kvöldum, stökkva niður af skúrþökum, fara í Kristjánsbakarí og fá snúð, kaupa bananastangir og síríusræmu í Alaska, frostpinna í Turninum, eftir Jollýkóla og kringlu, hvað það var vont að brenna sig á heitu kaffi, hlaupum á eftir"pissubílnum"eftir bláa og hvíta kjólnum mínum og hvítu sportsokkunum, fjólublárri kápu, holóttri Gránufélagsgötunni á rigningardegi, hvað var gaman að renna sér "úti á hól" eða upp á Akureyrarvelli, að fara á skauta, flétta kransa úr "sápublómum" með vinkonu sinni, hvernig var að vera í sumarbúðum, hvað mér fannst gott að fá kjötfars á brauði, hvernig var að fá nýtt skóladót á haustin, vera í Barbí, í kellingaleik og "reykja saltstangir", dansa og syngja í kertastjaka, mála sig með fullorðinsmálingadóti, rífast við strákana í skólanum, eftir strákunum sem maður var skotin í, fara á skólaskemmtun og fá að teikna á töfluna fyrir litlu jólin, fara eftirlitsferð með pabba og mömmu í Oddeyrarskólann, fá kleinur hjá ömmu, eftir kökubakstri fyrir jólin, löööngum páskamessum og jólamessum, leiðinni í skólann og "viltu vera samferða" eða "geturu verið með" renna sér niður tröppur á snjóþotu, hoppa í parís, flöskustút og fara í viðstöðulausan og svo ótalmörgu öðru og eftir þeirri hugsun að þá vildi ég bara alltaf fá að vera barn og var hrædd við að verða fullorðin!
Það er svo gott stundum að láta hugann reika aftur í tímann og muna eftir því hvernig var að vera barn og hvernig maður sá heiminn:0D
Kveðja og knús.
Arna

2 Comments:
OOOO guð gömlu góðu dagarnir..það voru sko skemmtilegar stundir.Ó ég þakka enþá í dag guði að hafa leit mig að þér sem vínkonu Elsku Arna mín takk fyrir frábæra stundir í æsku sem við áttum,þótt sum spor hafi verið erfið þá man maður bara eftir þeim góðu.Þó að við hittumst ekki oft þá átt þú alltaf vissan sess í mínu hjarta.Lovja þín æskuvinkona Klara.
Elsku Arna mikið er gaman að lesa þetta. Maður brosir nú bara hringinn og hallar sér aftur í stólnum og lætur hugann reika aftur í tímann. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Bettý
Skrifa ummæli
<< Home