sunnudagur, september 02, 2007

Langt síðan......


Jæja það er langt síðan eitthvað hefur verið skrifað hér inn.
Það er helst að frétta héðan að húsmóðirin er nú komin aðeins á stað í nýju vinnunni í Giljaskóla og líkar vel og húsbóndinn byrjar í sinni nýju vinnu hjá MESTá morgun! Allt að gerast! Afkvæmin eru byrjuð í skólanum og eru nú alveg á sitthvoru stiginu:o9 Í háskóla í sálfræði, framhaldsskóla á listnámsbraut og í grunnskóla í 3. bekk! Svo margt spennandi er í gangi;o)
Aldrei tókst nú familíunni að prófa tjaldvagninn sem fjárfest var í í sumar og nú er svo komið að tjaldvagninn er orðin að fellihýsi sem ekki heldur hefur tekist að finna tíma til að prófa:o( Hann hefur bara verið reyndur á lóðinni.
Vonandi verður þó hægt að nota þetta það næsta sumar! Sumarið hefur annars liðið í rólegheitum og allir í góðum gír.
Í gær var að vísu sorg á heimilinu því hún Dimma fiskastelpa safnaðist til feðra sinna og fór því sína hinstu för fram af bryggjunni, fallega útbúin í litlum ljósaperukassa með bleikri slaufu sem heimasætan útbjó fyrir hana.
Núna þessa stundina er allt í notarlegheitum og ég er bara að fylgjast með bóndanum malla nautakjöt fyrir okkur familíuna í kvöldmatinn ummm...eftir kúnstarinnar reglum.
Jæja kveð í bili -Arna

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

halló

er hægt að fá dulmálslykilin. ha ha ha

Kv Bettý

07 september, 2007 15:56  

Skrifa ummæli

<< Home