Frí Frí Frí

jæja nú er Mallorca að skella á og þar bíður sól og hiti! Það er afskaplega þægileg tilhugsun að vera að fara að flatmaga á sunlaugarbakkanum eða ströndinni.Svo getur nú verið að við komumst eitthvað í búðir,o) Við erum bara að pakka og taka okkur til þessa stundina og klára að gera það sem þarf áður en lagt er af stað.
Annars fórum við skötuhjúin út að borða í gærkvöldi með Sóleyju og Sævari á Strikið og áttum skemmtilegt kvöld. Guggnuðum samt á að skella okkur á ball og mikið var ég ánægð með það í morgun þó að það hefði örugglega verið gaman að tjútta svolítið.Júlía fékk að gista hjá ömmu sinni og Skruddu Skráms kisukerlingu En við vorum semsagt sofnuð um kl 1 hjúin, haha en Hákon og Viljar höfðu eitthvað lengra úthald og voru dálítið þreyttir þegar þeir skröngluðust í vinnuna í morgun en hresstust fljótt! Þetta hefði maður látið sig hafa hér áður fyrr en ekki lengur takk maður vill sinn svefn og hananú svo maður sé ekki að drepast úr geðvonsku vegna þess að maður hefur ekki sofið nóg, allavega er nauðsynlegt fyrir geðið á mér að sofa;o)
Núna er karlinn að undirbúa ljúffengan kvöldverð fyrir familíuna eins og honum er lagið og garnirnar eru farnar að gaula við að horfa á hann græja nautið og bringurnar. Allir á heimilinu ætla semsagt að hafa það virkilega gott í kvöld.
Jæja bæ í bili.
Sunnudagskveðja frá lötu Skessugilsliði.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home