föstudagur, mars 03, 2006

Föstudagur!

Jæja kominn föstudagur og vinnutörn að byrja hjá mér. Búið að vera mikið að gera alla vikuna. Ég er að vinna að verkefninu mínu svo að ég verði tilbúin með markmiðin mín þegar ég fer að kynna þau í skólanum, en þau snúa að kynfræðslu fatlaðra.Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki og nýjum hlutum og það hef ég einmitt verið að gera að undanförnu . Við Margrét mín erum svo að byrja að undirbúa lokaverkefnið okkar sem snýr að þroska fyrirbura sem er mjög spennandi viðfangsefni. Erum að byrja að lesa okkur til og hittum svo leiðbeinandann okkar í næstu lotu hann doktor Þórð :0)Hann vill allt fyrir okkur gera þessi maður, já það eru til ýmsir gullmolar.
Ég verð náttúrulega hjá "familíunni" minni í Garðabænum sem hefur alltaf herbergi og hjartarúm fyrir mig.
það er Húllumhæ hjá Húsasmiðjunni og kallinn hefur verið á fullu í undirbúningi þessi elska, prenta út söngbækur og glugga í bókina Samkvæmisleikir! Þetta verður eflaust mikið fjör og gaman. Hann er góður í svona partýundirbúningi þessi elska, kannski ætti ég að fara að leigja hann út!haha Ég verð samt fjarri góðu gamni verð í vinnunni en næ kannski aðeins í rassinn á teitinu;0)
Við Júlía erum að spila veiðimann milli þess að ég skrifa eitthvað gáfulegt og sinni húsverkum, ja það er ekki hægt að segja annað en maður sé fjölhæfur einstaklingur!!!
Húsdýrin eru fjörug þennan morguninn, það er blaðrað og þvaðrað í bláa búrinu og Nemó er í klifurgírnum og hendir lokinu hvað eftir annað af búrinu sínu og svo stendur hann aldeilis ánægður með sig með hausinn upp úr gatinu, fremur spaugilegur.
Jæja nóg komið af blaðri. Vonandi eiga allir góða helgi:0)

Set hér inn dálítið sem gott er að hafa hugfast í lífsins ólgusjó!

Guð, gefi mér æðruleysi,
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark, til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.

Knús og kram til ykkar
Arna

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já víst ertu fjölhæf mín kæra og gangi þér vel með hele skólaverkefnin.
Kveðja Alda ömmusystir

08 mars, 2006 21:38  

Skrifa ummæli

<< Home