Jæja
Jæja loksins er ég komin heim úr lotunni og byrjuð á fullu í verknáminu:0)
Lotan fyrir sunnan var strembin og mikið að gera, svo ekki stóð maður í heimsóknum!
Steinlá alltaf eftir daginn ZZZZ Lærði margt og mikið! Hafði það reglulega gott eins og alltaf hjá familíunni minni í Garðabænum.Mætti svo beint í vinnuna um helgina og var orðin frekar rislá í gærkvöldi.
Við Margrét áttum fund með leiðbeinandanum okkar honum Þórði á Barnaspítala Hringsins og mér leist mjög vel á hann og tillögur hans í sambandi við lokaverkefnið enda mjög alhyglisvert allt saman:0) Fengum líka að skoða Vökudeildina sem var einstök upplifun að sjá allar þessar ofurlitlu manneskjur, algjör kraftaverk!!!!
Nú sit ég og reyni að virkja kvarnirnar og skrifa eitthvað gáfulegt en það gengur svona og svona! Ég er að rembast við að tengja fræðin við það sem ég er að gera í verknáminu:0)
En að öðru.Okkur skötuhjúunum langar virkilega að skreppa á Litlu hryllingsbúðina í páskafríinu og erum að reyna að smala einhverjum með okkur, sem að ég vona að takist. Það væri t.d. frábært að fara líka út að borða er það ekki? Endilega látið vita ef þið hafið áhuga!
Bless í bili Arna

2 Comments:
Hæ sæta og velkomin heim;) Við erum sko til í að koma með, Klara verður hjá mér um páskana verð því að ræða þetta við hana og svo auðvitað að bjarga gæslu fyrir allt gengið okkar:) Verðum bara að fara að taka ákvörðun svo við getum pantað miða í tíma.
Kveðja Solla Bolla :)
Hæ og takk fyrir síðast.
jón örn benti mér á þessa flottu vísu sem ég læt fylgja með hér og er eftir einar ben.
Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest
og hleyptu á burt undir loftsins þök.
Hýstu aldrei þinn harm. Það er best.
Að heiman, út, ef berst í vök .
Það finnast ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl, sem ei þaggast, ei lund, sem ei kætist og fjörgammsins stoltu og sterku tök.
Láttu hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist.
Jæja er þá ekki bara málið að skella sér í hestamennskuna. he hehe
kv að vestan bettý
Skrifa ummæli
<< Home